|
|||||||||||||||||||
|
Ákveðið hefur verið að fella niður kröfu um MNPS samþykki fyrir flug innan HLA hluta íslenska flugstjórnarsvæðisins þ.e. FL285 til FL420, og krefjast þess í staðinn að loftför uppfylli kröfur um RNAV 10 eða RNP 4 leiðsöguforskrift.
|
|||||||||||||||||||
|
Ástæða breytingarinnar er samræming verkferla íslenska flugstjórnarsvæðisins við alþjóðlega verkferla og auðvelda þannig aðgengi að svæðinu og minnka kröfur og kostnað fyrir okkar viðskiptavini.
|
|||||||||||||||||||
|
Framkvæmd var bráðarbirgða öryggismat til að meta áhrif af því að fella niður kröfu um MNPS/HLA samþykki fyrir flug innan NAT HLA. Það mat sýndi fram á að núverandi kröfur um MNPS/HLA samþykki sem birtar eru í Annex 6 og Doc 7030 skjölum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) eru annað hvort birtar í öðrum skjölum ICAO eða óþarfar.
|
|||||||||||||||||||
|
Avians vann öryggisferli vegna niðurfellingar kröfu um MNPS samþykki innan HLA hluta íslenska flugstjórnarsvæðisins.
Niðurstaða öryggisferlisins var að niðurfelling MNPS samþykkis innan HLA hluta íslenska flugstjórnarsvæðis myndi ekki hafa óhagstæð áhrif á flugöryggi. |
|||||||||||||||||||
|
Breytingin verður innleidd með fyrirvarauppfærslu á Flugmálahandbók Íslands (AIP) sem taka mun gildi 26. nóvember 2026.
|
|||||||||||||||||||
|
Ef óskað er frekari upplýsinga, eða ef koma þarf athugasemdum á framfæri, vinsamlegast hafið samband við:
|
|||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||
|
Netfang / Email:
procedures@avians.is
|
|||||||||||||||||||
|
Viðbætur við Flugmálahandbók felldar út gildi:
|
|||||||||||||||||||
|
Engar
|
|||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||
|
Efni eftirfarandi NOTAM skeyta birt í þessu upplýsingabréfi:
|
|||||||||||||||||||
|
Ekkert
|
|||||||||||||||||||
|
ENDIR / END
|
|||||||||||||||||||