|
|||||||||||||||||||
|
Framkvæmdin felur í sér endurnýjun aðflugsljósakerfis flugbrautar 10, ásamt tilheyrandi raflögnum, undirstöðum og aðflugsljósamöstrum.
|
|||||||||||||||||||
|
Framkvæmdasvæðinu hefur verið skipt í þrjú (3) svæði.
|
|||||||||||||||||||
|
Á framkvæmdatímanum má gera ráð fyrir að notkun flugbrauta 10 og 28 verði takmörkuð á ákveðnum tímabilum.
|
|||||||||||||||||||
|
BIKF turn mun nota flugbraut 01/19 þegar vindhraði fer ekki yfir 25 hnúta.
|
|||||||||||||||||||
|
Framkvæmdirnar hafa áhrif á aðflugslágmörk fyrir flugbraut 10, þ.m.t. VOR-, VORTAC- og NDB-aðflug.
Lágmarksflughæð yfir hindrun (Obstacle Clearance Altitude – OCA) fyrir alla aðflugsflokka verður því hækkuð í 390 fet á framkvæmdatímanum. |
|||||||||||||||||||
|
Aðflugsljósakerfi og ILS aðflug fyrir flugbraut 10 verða ekki í boði meðan framkvæmdir standa yfir.
|
|||||||||||||||||||
|
Tilgreindar viðmiðunarvegalengdir fyrir flugbraut 10 verða óbreyttar á framkvæmdatímanum.
|
|||||||||||||||||||
|
TODA á flugbraut 28 verður stytt um 300 m hluta framkvæmdartímans.
|
|||||||||||||||||||
|
NOTAM vegna breytinga á viðeigandi tilgreindum viðmiðunarlengdum verður gefið út þegar þörf verður á.
|
|||||||||||||||||||
|
Áætlaður framkvæmdatími er frá 27. apríl 2026 til 28. ágúst 2026.
|
|||||||||||||||||||
|
Svæði A er hliðrað um 43,5 m frá miðlínu akbrauta K og S, sem samsvarar öryggissvæði fyrir loftför sem þarfnast flugvallarkóðastafs E.
|
|||||||||||||||||||
|
Þegar vinna fer fram innan framkvæmdasvæðis A verða akbrautir K4 og S4 lokaðar. Jafnframt verður flugbraut 10 og 28 lokaðar fyrir flugtök og lendingar meðan á vinnu stendur.
|
|||||||||||||||||||
|
Svæði B tekur við af svæði A og nær um 320 m til vesturs frá þröskuldi flugbrautar 10.
Þegar vinna fer fram innan framkvæmdasvæðis B verða flugbrautir 10 og 28 lokaðar fyrir lendingar og flugtök meðan á vinnu stendur. |
|||||||||||||||||||
|
Svæði C tekur við af svæði B og nær um 900 m til vesturs frá þröskuldi flubrautar 10.
|
|||||||||||||||||||
|
Þegar vinna fer fram innan framkvæmdarsvæðis C verða flugbrautir 10 og 28 opnar fyrir flugtök og lendingar.
|
|||||||||||||||||||
|
Lágmarksflughæð yfir hindrun (Obstacle Clearance Altitude – OCA) fyrir alla aðflugsflokka verður hækkuð í 390 fet á framkvæmdatímanum fyrir VOR-, VORTAC- og NDB-aðflug að flugbraut 10.
|
|||||||||||||||||||
|
Ef óskað er frekari upplýsinga, vinsamlegast sendið tölvupóst til:
|
|||||||||||||||||||
|
Ágúst Kr. Björnsson verkefnastjóri
agust.bjornsson@isavia.is |
|||||||||||||||||||
|
eða
|
|||||||||||||||||||
|
Daníel Hólmgrímsson Eignastjóri Flugvallarinnviða
daniel.holmgrimsson@isavia.is |
|||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||
|
Viðbætur við Flugmálahandbók felldar út gildi:
|
|||||||||||||||||||
|
Engar
|
|||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||
|
Efni eftirfarandi NOTAM skeyta birt í þessu upplýsingabréfi:
|
|||||||||||||||||||
|
Ekkert
|
|||||||||||||||||||
|
ENDIR / END |
|||||||||||||||||||