AIP Supplement – ÍSLAND / ICELAND
Isavia ANS ehf., Reykjavíkurflugvelli, 102 Reykjavík /
Isavia ANS, Reykjavik Airport, IS-102 Reykjavik, Iceland
Sími / Telephone: + 354 424 4000
ais@isavia.is
http://www.isavia.is/

 
AIP SUP nr 05/2026
Effective from  05 MAR 2026
Published on 05 MAR 2026
 

 
Drónaflug LHG í fjölþættum tilgangi/ ICG multipurpose drone flight
Efnisleg ábyrgð: Isavia ANS 

1 Inngangur

1.1. Landhelgisgæsla Íslands (LHG) mun í samvinnu við Siglingaöryggisstofnun Evrópu (EMSA) og Tekever halda utan um tilraunaverkefni þar sem dróni mun fljúga og sinna skyldum LHG innan lögsögu Íslands frá 4. maí til loka september 2026.
1.2. Tegund drónans er Tekever AR5 og er hann búinn margskonar hátæknibúnaði og mælitækjum svo hægt sé að koma auga á og skoða nánar það sem LHG hefur skyldu til að fylgjast með.

2 Innleiðing

Vegna þessa verða útbúin hafta- og hættusvæði sem ætluð eru fyrir flug drónans frá sjávarmáli upp í 3000 til 5000 fet.
Þegar þessi svæði verða í notkun er frjálst að fljúga drónanum innan þeirra.
Svæðin verða auglýst nánar í lok apríl með uppfærslu á þessum viðbæti og útgáfu NOTAM.
Þessi viðbætir (SUP) verður uppfærður í lok apríl með upplýsingum um svæðin.

3 Tengiliðir

Ef óskað er frekari upplýsinga, eða ef koma þarf athugasemdum á framfæri, vinsamlegast hafið samband við:
 
Netfang / Email: procedures@isavia.is

 


 
Viðbætur við Flugmálahandbók felldar út gildi:
Engar
 
Efni eftirfarandi NOTAM skeyta birt í þessu upplýsingabréfi:
Ekkert
 

ENDIR / END