Ábyrgð á fjarskiptaþjónustu í flugstjórnar- og flugupplýsingasvæði Reykjavikur og flugleiðsöguvirkjum á Íslandi er á hendi Isavia ANS Fyrirspurnum, tilmælum og kvörtunum varðandi þessa þjónustu skal beint til:
|
||||||||||||
|
||||||||||||
Ábyrgð á stuttbylgju- og almennum metrabylgjufjarskiptum á alþjóðlegum flugleiðum er á hendi Isavia ANS. Fyrirspurnum, tilmælum og kvörtunum varðandi þessa þjónustu skal beint til:
|
||||||||||||
Fyrirspurnum, ábendingum eða kvörtunum varðandi:
|
||||||||||||
Þjónustan er veitt í samræmi við ákvæði í eftirtöldum skjölum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar:
|
||||||||||||
|
||||||||||||
Frávik frá stöðlum er að finna í GEN 1.7.
|
||||||||||||
Fjarskiptaþjónusta er veitt í flugstjórnar- og flugupplýsingasvæði Reykjavíkur.
|
||||||||||||
Eftirfarandi leiðsöguvirki eru tiltæk til flugleiðsögu:
|
||||||||||||
Skrár um valdar útvarpsstöðvar er að finna í aðskildri töflu í GEN 3.4.4.3. Upplýsingarnar eru takmarkaðar við stöðvar sem hafa 1 KW í sendiorku eða meira.
|
||||||||||||
Öll loftför í íslenska flugstjórnarsvæðinu skulu halda stöðugan hlustvörð á viðeigandi tíðni „Iceland Radio“ nema að þau séu í beinu sambandi við flugumferðarstjóra í flugstjórn.
|
||||||||||||
Krafist er HF RTF-fjarskiptatækis með viðeigandi radíótíðni ef flogið er utan drægis VHF-stöðva. Loftfar einungis búið VHF tækjabúnaði ætti að tryggja að það fljúgi ekki út fyrir VHF drægi viðeigandi fjarskiptastöðva.
|
||||||||||||
Flug utan VHF drægis krefst þess að um borð séu tvö langdræg fjarskipta kerfi, annað þeirra skal vera HF. SATVOICE og CPDLC nægir til að fullnægja kröfum um seinna langdræga fjarskiptakerfið. Vegna takmarkan á drægi, dugir Inmarsat CPDLC eða SATVOICE kerfi ekki þegar flogið er norðan við 80 norður. Flugvélar sem eru búnar bæði Inmarsat (J5) og Iridium (J7) gagnatengingu ættu að nota Iridium þegar flogið er norðan við 80 norður.
|
||||||||||||
Flug sem vilja fljúga utan VHF drægis geta beðið um undanþágu frá kröfum um HF, svo lengi sem flugið fellur undir eitt af eftirfarandi;
|
||||||||||||
Hægt er að óska undanþágu a.m.k. 24 tímum áður en flugið áætlar að koma inn í flugstjórnarrými Reykjavikur með netpósti til stjórnanda flugstjórnarmiðstöðvarinnar í Reykjavik acc@isavia.is að því gefnu að flugvélin hafi að minnsta kosti tvö langdræg samskiptatæki sem við eiga fyrir flugleiðina.
|
||||||||||||
|
||||||||||||
Skeyti sem senda skal um fastastöðvaþjónustu fyrir flug eru aðeins samþykkt ef þau eru í samræmi við kröfur Annex 10, Alþjóðaflugmálastofnunarinnar.
|
||||||||||||
Eftirfarandi útvarpsþjónusta er veitt:
|
||||||||||||
Enska er aðaltungumál fjarskipta við loftför í millilandaflugi. Í innanlandsflugi er ýmist notuð íslenska eða enska.
|
||||||||||||
Enska er eingöngu notuð til fjarskipta við alþjóðaflug á eftirtöldum tíðnum:
|
||||||||||||
Flugstjórnarmiðstöðin, Reykjavík (ACC):
|
||||||||||||
|
||||||||||||
Iceland Radio:
127.850 MHz, 126.550 MHz, 129.625 MHz (talsamband fyrir almenn flugfjarskipti), svo og allar stuttbylgjur, sem notaðar eru (Flokkar B, C og D). |
||||||||||||
Aðflugstjórn, Keflavík (APP): 119.300 MHZ, 121.300 MHZ.
|
||||||||||||
Enska er eingöngu notuð til fjarskipta á eftirtöldum tíðnum:
|
||||||||||||
Keflavík Tower: 118.300 MHz
|
||||||||||||
Keflavík Ground: 121.900 MHz
|
||||||||||||
Keflavík Clearance Delivery: 121.000 MHz
|
||||||||||||
Tæmandi upplýsingar um flugleiðsögubúnað er að finna í ENR 4.
|
||||||||||||
Tæmandi upplýsingar um hina ýmsu þjónustu, sem til staðar er fyrir einstaka flugvelli, er að finna í AD. Í þeim tilfellum þar sem búnaður þjónar bæði leiðarflugi og flugvöllum eru viðeigandi tæmandi upplýsingar að finna í ENR og AD.
|
||||||||||||
Kröfur fyrir fjarskiptaþjónustu og hin almennu skilyrði, sem fyrir hendi eru við veitingu fjarskiptaþjónustu alþjóðaflugsins og jafnframt til að vera með fjarskiptatæki um borð, eru tekin lauslega saman hér á eftir:
|
||||||||||||
Varaafl fyrir fjarskiptastöðvar.
|
||||||||||||
Eftirtaldar flugupplýsingaþjónustur flugvalla hafa varaafl:
|
||||||||||||
HF-tíðnir, flokkur B:
2899 KHz - 2100 - 0900 UTC 5616 KHz - H24 8864 KHz - H24 13291 KHz - 0900 - 2100 UTC HF-tíðnir, flokkur C: 2872 KHz - 2100 - 0900 UTC 5649 KHz - H24 8879 KHz - H24 13306 KHz - 0900 - 2100 UTC HF tíðnir, flokkur D: 2971 KHz - 2100 - 0900 UTC 4675 KHz - H24 8891 KHz - H24 11279 KHz - H24 13291 KHz - 0900 - 2100 UTC 17946 KHz - 0900 - 2100 UTC |
||||||||||||
Vélar með samþykkt SATVOICE frá ríki flugrekenda eða skráningarríki, mega nota það til samskipta við flugumferðarþjónustu, að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:
|
||||||||||||
|
||||||||||||
Ath.
Talsamskipti um gervihnött koma ekki í staðinn fyrir ADS-C, CPDLC eða HF samskipti, heldur eiga þau að minnka hættu á sambandsleysi, auka öryggi og minnka álaga á HF bylgjum.
|
||||||||||||
|
||||||||||||
|
||||||||||||
CPDLC og ADS-C þjónustan er veitt í samræmi við ICAO, skjal nr. 10037 Global Operational Data Link (GOLD) Manual.
|
||||||||||||
|
||||||||||||
Flugvél kemur inn í íslenska flugstjórnarsvæðið frá:
|
||||||||||||
|
||||||||||||
Brottflug frá flugvöllum innan hliðarmarka íslenska flugstjórnarsvæðisins:
|
||||||||||||
Skrá skal inn í þjónustuna eftir flugtak.
|
||||||||||||
Sjá texta á ensku.
|
||||||||||||
|
||||||||||||
|
||||||||||||
|
||||||||||||
|
||||||||||||
|
||||||||||||
Varðandi heimild á CPDLC til lækkunar um STAR ferla inn til BIKF, sjá texta á ensku.
|
||||||||||||
Eftirfarandi ADS-C samningar eru gerðir við allar flugvélar með ADS-C getu sem skrá sig inn í þjónustuna:
|
||||||||||||
Sjá texta á ensku.
|
||||||||||||
Ekki skal senda RCL með ACARS til Reykjavik Control fyrr en 20 mínútum áður en komið er að OEP.
|
||||||||||||
|
||||||||||||
Eftirfarandi skal áréttað til að forða misskilningi:
|
||||||||||||
REYKJAVÍK FLUGSTJÓRN SÉR UM FLUGSTJÓRN INNAN REYKJAVÍK FIR/CTA.
KALLMERKI: REYKJAVÍK FLUGSTJÓRN. |
||||||||||||
ICELAND RADIO ER FLUGFJARSKIPTASTÖÐ FYRIR REYKJAVÍK FIR/CTA .
KALLMERKI: ICELAND RADIO. |
||||||||||||
Ath.
Vegna tæknilegra takmarkana er Iceland radio kallað „Iceland Radio Center“ í CPDLC samskiptum. Þetta er til þess að gera flugmanni kleift að hlaða fjarskiptatíðni sjálfvirkt inn í fjarskiptabúnað flugvélarinnar.
|
||||||||||||
Öll flugfjarskipti á Íslandi skulu vera í samræmi við reglugerð 770/2010 um flugreglur, gr. 3.6.5. Tíðnir fyrir fjarskipti sjónflugs utan stjórnaðs loftrýmis eru 118.100 og
118.400 MHz. Sé flogið austan Þjórsár og Hofsjökuls, sunnan við 65N skal nota 118.400 MHz. Utan þess svæðis skal nota 118.100 MHz. Það er algóð regla flugmanna í sjónflugi að tilkynna blint kallmerki, stöðu, hæð og fyrirætlan á um það bil hálftíma fresti. Einnig um stöðu í umferðarhring, undan vindi, á þverlegg og á lokastefnu fyrir braut á óstjórnuðum flugvelli. Flugmenn skulu einnig láta vita á viðeigandi tíðni áður en ekið er út á flugbraut fyrir flugtak á óstjórnuðum flugvöllum. |
||||||||||||
Upplýsingar um tíðnir má sjá í viðeigandi AD köflum AIP.
Sjá nánar um samskipti flugmanna og flugumferðarþjónustu í GEN 3.3.3.1. |
||||||||||||
Tíðni fyrir önnur samskipti loftfara en þau sem varða flugið er 123.450 MHz.
|
||||||||||||
ICAO skjal 7030 NAT 3.6.2.3, 6.1.2.2 og 9.3
|
||||||||||||
Ath. -
Bilun í HF fjarskiptum stafar oft af truflun á dreifingu HF merkja, oft vegna aukinnar virkni sólar, sem hefur áhrif á fjölda flugvéla á ákveðnu svæði. Flugleiðsögukerfi sem nota HF eru hönnuð með það í huga að samskipti geti bilað tímabundið og að flugvél sem bilunin hefur áhrif á muni fylgja síðustu flugheimild sem flugmaður staðfesti þar til samskiptum er komið á að nýju.
|
||||||||||||
Eftirfarandi verklagi er ætlað að veita almennar leiðbeiningar fyrir flugmenn sem fljúga inn í eða út úr úthafssvæði Reykjavíkur og lenda í að fjarskipti bregðast. Ekki er mögulegt að gefa tæmandi leiðbeiningar fyrir allar mögulegar aðstæður þar sem fjarskipti bregðast.
|
||||||||||||
Flugmaður skal reyna að hafa samband, annað hvort við aðra flugvél eða aðra flugstjórnareiningu, tilkynna um vandræðin og óska eftir að upplýsingarnar verði sendar áfram til þeirrar flugstjórnareiningu sem samskiptin eru ætluð.
|
||||||||||||
|
||||||||||||
Þegar flogið er innan flugupplýsingasvæða Reykjavíkur og Nuuk, ættu flugáhafnir sem ekki geta gefið tilkynningar um staðarákvarðanir í gegnum VHF eða CPDLC, ADS-C eða FMC að nota HF eða gervihnattasíma, ef hann er til staðar. Hringja skal með gervihnattasíma í Iceland radío, símanúmer 425105. Númerin 425101 og 425103 eru hjá flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík og eru ætluð til notkunar í neyð.
|
||||||||||||
Ef talstöðvarbilun á sér stað þá er meginreglan sú að loftför skulu halda að ákveðnu leiðsöguvirki, er þjónar ákvörðunarstað, og halda síðastgefna fluglagi og kvaka 7600. Eftir það skal loftfar fylgja reglum 3.4.4.12.3, 2e), 2f) og 2g) hér að neðan.
|
||||||||||||
Þegar loftfar í blindflugi innanlands verður fyrir því að fjarskipti bregðast skal það:
|
||||||||||||
2. Ef blindflugsskilyrði eru eða veðurskilyrði eru þannig, að ekki virðist ráðlegt að ljúka fluginu í sjónflugs-skilyrðum, skal loftfarið:
|
||||||||||||
2a. Halda síðast heimilaða hraða og lagi, eða lágmarkshæð ef hærri, í 20 mínútur í kjölfar þess að loftfarið gat ekki tilkynnt stöðu sína yfir skyldustöðumiði og eftir það skal laga hraða og lag að skráðri flugáætlun;
|
||||||||||||
2b. Í loftrými þar sem kögunarkerfi eru notuð við veitingu flugstjórnarþjónustu, halda síðast heimilaða hraða og lagi, eða lágmarkshæð ef hærri, í 7 mínútur frá þeim tíma:
|
||||||||||||
hver sem síðar er, og eftir það laga hraða og lag að skráðri flugáætlun;
|
||||||||||||
Ath.
Takmörkun margra ADS-B senda varðandi merki 7600. Sjá ENR 1.6.3.
|
||||||||||||
2c. þegar stefning er notuð eða þegar flugumferðarstjórn hefur gefið fyrirmæli um að halda áfram á hliðraðri leið með því að nota svæðisleiðsögu (RNAV) án tiltekinna marka skal fara aftur á flugleið gildandi flugáætlunar eigi síðar en við næsta leiðarmið, að teknu tilliti til gildandi lágmarksflughæðar;
|
||||||||||||
2d. halda skal áfram samkvæmt gildandi flugáætlun að viðeigandi tilgreindum leiðsöguvita eða stöðumiði sem þjónar ákvörðunarflugvelli og, þegar þess er krafist, að tryggja að farið sé að e-lið hér að neðan, fljúga biðflug yfir þessum leiðsöguvita eða stöðumiði þar til byrjað er að lækka flugið;
|
||||||||||||
2e. hefja lækkun frá þeirri flugleiðsögustöð, sem tilgreind er í d), á eða sem næst áætluðum aðflugstíma sem síðast var móttekinn og staðfestur, eða - ef enginn áætlaður aðflugstími hefur verið móttekinn og staðfestur - á eða sem næst þeim áætlaða komutíma sem tilgreindur er í gildandi flugáætlun og breytt hefur verið samkvæmt gildandi flugáætlun;
|
||||||||||||
2f. ljúka venjulegu blindaðflugi á þann hátt sem gildir fyrir hina tilgreindu flugleiðsögustöð; og
|
||||||||||||
2g. lenda, ef unnt er, innan 30 mínútna frá áætluðum komutíma sem tiltekinn er í e) eða síðasta staðfesta aðflugstíma eftir því hvor er seinna í röðinni.
|
||||||||||||
Ef fjarskipti bregðast í flugvél í flugstjórnarsviði skal flugmaður setja ratsjársvara á 7600 og koma inn í umferðarhring um næsta stöðumið samkvæmt sjónflugs- leiðum og fylgja umferðarhring að lokastefnu flugbrautar í notkun. Fylgjast vel með annarri umferð og ljósmerkjum frá flugturni. Ekki skal lent nema um alvarlegt neyðarástand sé að ræða, fyrr en stöðugt grænt ljósmerki hefur verið gefið frá flugturni. Eftir lendingu skal flugvél með talstöðvarbilun halda áfram lendingarbruni að næstu útkeyrslu og rýma braut svo fljótt sem auðið er. Flugumferðarstjórn getur kannað hvort viðkomandi flugvél hafi móttakara í lagi með þvi að biðja vélina að kvaka auðkenni eða vagga vængjum.
|