|
GEN 1.4.1 Tolleftirlit með farmi og öðrum hlutum
|
Öll loftför sem koma til eða fara frá Íslandi skulu undirgangast tolleftirlit. Þau gögn sem nauðsynleg eru til afgreiðslu loftfars í gegnum tolleftirlit eru talin upp í
GEN 1.2.2.5. Nauðsynlegt kann að vera að leggja fram yfirlýsingu til tollyfirvalda varðandi afgreiðslu, kvittanir, innflutnings/ útflutningsleyfi eða upprunavottorð.
|
Venjulega er engra gagna krafist vegna farms sem kemur erlendis frá og ætlaður er til útflutnings með öðru loftfari á sama flugvelli undir tolleftirliti. Slíkur farmur skal tilgreindur í almennri komuskýrslu eða farmskrá sem framvísað er vegna beggja loftfara.
|
Sama á við um farm sem kemur erlendis frá og ætlaður er til útflutnings með sama loftfari. Slíkum farm skal lýst í almennri komuskýrslu eða farmskrá sem framvísað er vegna loftfarsins.
|
GEN 1.4.2 Innflutningstakmarkanir / bann
|
Meðal hluta sem takmarkanir eru settar á innflutningi eða er bannað að flytja inn eru t.a.m. þessar vörutegundir:
|
-
Símar og fjarskiptatæki skulu uppfylla grunnkröfur og bera CE-merkingu því til staðfestingar. Innflutningur á símum og fjarskiptatækjum sem ber ekki CE- merkingu er háður leyfi Póst- og fjarskiptastofnunar.
-
Veiðibúnaður, reiðtygi og reiðfatnaður sem notaður hefur verið erlendis, enda hafi sótthreinsun farið fram áður en varningurinn er fluttur inn. Liggi ekki fyrir vottorð erlends yfirvalds um sótthreinsun, fer hún fram hérlendis, á kostnað viðkomandi.
-
Skotvopn, skotfæri og sprengiefni. Að svo miklu leyti sem innflutningur slíkra vara er heimill, er hann háður leyfi Ríkislögreglustjóra.
-
Lifandi dýr. Óheimilt er að flytja inn hverskonar dýr, sem og erfðaefni þeirra, nema að fyrir liggi leyfi landbúnaðarráðherra.
-
Ávana- og fíkniefni eru bönnuð. Lyf eru háð innflutningsleyfi en heimilt er að hafa meðferðis lyf til eigin nota sem ávísað hefur verið á lögmætan hátt og miðast við 30 daga notkun fyrir einstakling með búsetu í landi, sem á aðild að Schengen- samningnum, og 14 daga notkun fyrir einstakling með búsetu í landi utan Schengen.
-
Blóm og aðrar plöntur. Innflutningur blóma og annarra plantna er almennt háður því að þeim fylgi heilbrigðisvottorð frá opinberum aðila sem hefur eftirlit með plöntusjúkdómum í ræktunarlandinu, auk þess sem leyfi Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins er áskilið.
-
Afurðir dýra og vörur sem geta borið með sér smitefni er valda sjúkdómum í dýrum og mönnum er óheimilt að flytja inn nema með leyfi landbúnaðarráðherra (sjá reglugerð um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins).
|
Útflutningur tiltekinna plantna (verndaðra tegunda) og hluta sem af menningarlegum eða sögulegum ástæðum kunna að vera háð útflutningstakmörkunum lögum samkvæmt.
|
GEN 1.4.3 Kröfur um sóttkví í sambandi við landbúnað
|
-
Lifandi dýr. Innflutt gæludýr skulu dvelja í einangrunarstöð í fjórar vikur (sjá reglugerð um innflutning gæludýra og hundasæðis). Innflutt loðdýr skulu dvelja í sóttvarnarstöð eigi skemur en 24 vikur (sjá reglugerð um innflutning loðdýra).
|