|
|
|
Starfshættir vegna bið-, að- og brottflugs, sem notaðar eru í flugupplýsingasvæði (FIR) Reykjavíkur, eru grundvallaðir á gildum og þáttum úr gildandi útgáfu ICAO Doc 8168 frá Alþjóðaflugmálastofnuninni: Starfshættir fyrir flugleiðsöguþjónustu – Flugrekstur (PANS-OPS).
|
|
Starfshættir, sem notaðir eru vegna bið-, að- og brottflugs, eru grundvallaðir á gildum og þáttum í hluta III og IV úr PANS-OPS handbók, bindi I.
|
ENR 1.5.1.3 Lækkun niður fyrir ský
|
Víða við flugvelli á Íslandi hafa verið hannaðir flugferlar til að loftför geti lækkað niður fyrir ský (cloud break procedure/ cloud penetration) og ljúka síðan flugi í sjónflugi (VFR) Þessir flugferlar eru í samræmi við PANS OPS fyrir aðflug að flugvelli, lágmarks hindrana (OCA) hæð er aldrei lægri en 500 fet y.m.s. eða 300 fet yfir flugvelli (OCH), hvort heldur er hærra. Þessi aðflug bera heiti aðflugsaðferðar beitt í lokaaðflugi að viðbættum bókstafnum C eða D (RNAV C, NDB D).
|
|
|
Flugvélar í blindflugi, er koma og lenda innan aðflugstjórnarsvæðis, munu fá flugheimild að ákveðnum biðstað og fá fyrirmæli um að hafa samband við aðflugstjórn á ákveðnum tíma, hæð eða stað. Farið skal eftir þessari flugheimild þar til önnur fyrirmæli eru fengin frá viðkomandi aðflugsstjórn. Ef komið er yfir heimildarmörk áður en frekari fyrirmæli hafa borist skal hefja biðflug í þeirri hæð sem síðast var heimiluð.
|
Flugvélar í blindflugi, er koma og lenda utan aðflugsstjórarsvæðis, munu fá heimild til lækkunar út úr flugstjórnarsvæði um STAR eða aðflugsferil eftir því sem við á. Ef heimild til lækkunar út úr flugstjórnarsvæði er gefin án þess að tilgreina hvaða aðflug skal framkvæma, skal flugmaður tilkynna flugumferðarstjórn hvaða aðflug hann ætlar að framkvæma.
|
ENR 1.5.2.2 Upplýsingagjöf til Flugumferðarstjórnar
|
Vegna takmarkaðs rýmis er mikilvægt að aðflug til biðsvæða og að biðflugsstarfshættir séu framkvæmd eins nákvæmlega og hægt er. Flugmenn eru eindregið beðnir um að láta ATC vita ef þeir af einhverjum ástæðum geta ekki framfylgt að- og biðflugi eins og krafist er.
|
|
|
Flugvélar í blindflugi sem fara frá stjórnuðum flugvöllum munu fá frumheimild frá flugturni viðkomandi flugturns.
Flugheimildarmörk munu venjulega verða ákvörðunarflugvöllur. Flugvélar í blindflugi er fara frá óstjórnuðum flugvöllum fá frumheimild frá flugradíó viðkomandi flugvallar. Flugvélar í blindflugi sem fara frá flugvöllum án flugumferðarþjónustu skulu hafa samráð við flugstjórnarmiðstöðina í Reykjavík.
|
ENR 1.5.3.2 Fylgja heimilaðri flugleið
|
Ákveðin fyrirmæli munu verða gefin með tilliti til flugleiða, beygja o.s.frv. Ef engin fyrirmæli eru gefin, skulu loftför vera komin inná heimilaða flugleið innan 15 NM frá brottfararstað
|
ENR 1.5.4 Aðrar viðeigandi upplýsingar og verklag
|
|