AIP Supplement – ÍSLAND / ICELAND
Isavia ANS ehf., Reykjavíkurflugvelli, 102 Reykjavík /
Isavia ANS, Reykjavik Airport, IS-102 Reykjavik, Iceland
Sími / Telephone: + 354 424 4000
ais@isavia.is
http://www.isavia.is/

 
AIP SUP nr 16/2025
Effective from  25 AUG 2025
Published on 25 AUG 2025
 

 
KEFLAVÍK - Framkvæmdir á hlaði við ITS flugskýli (Verkefni MAM25) /
KEFLAVIK - Construction work at ITS maintenance apron (Project MAM25)

Efnisleg ábyrgð: Isavia, Keflavíkurflugvöllur 

1 Inngangur

Verkefnið felst í viðhaldi og endurbótum á hlaði við ITS flugskýlið á Keflavíkurflugvelli. Markmiðið er að bæta skipulag og starfsemi á svæðinu með nýjum og endurhönnuðum loftfarastæðum, auk uppfærslu á innviðum og yfirborði hlaðsins. Meðal helstu breytinga eru nýtt MARS-stæði sem býður upp á sveigjanlega notkun fyrir mismunandi flugvélastærðir, samruni tveggja stæða í eitt „drive-through“ stæði fyrir minni flugvélar og nýir þjónustuvegir sem bæta aðgengi og öryggi á svæðinu. Verkefnið nær einnig til jarðvegsskipta, malbikunarvinnu, steypu undir hjólasvæði flugvéla og uppsetningar nýs ofanvatnskerfis. Áætlaður framkvæmdartími verksins er frá lok ágúst til lok október 2025.

1.1 Áætlaður gildistími

Áætlað er að framkvæmdir muni standa yfir á hlaðinu frá lokum ágúst 2025 til loka október 2025.
Áhrif á starfrækslu vegna framkvæmda verða birt í NOTAM ef þörf er á.
 

1.2 Verkefni

Verkefnið felur í sér endurskipulagningu og endurbætur á flughlaðinu fyrir framan ITS skýlið. Unnið verður við viðhald og uppfærslu á núverandi malbiksyfirborði, þar á meðal fræsingu, steypuvinnu og nýja malbikun. Hluti flughlaðsins verður steyptur til að auka endingu og lengja líftíma þess. Þá verður komið fyrir nýrri ofanvatnsrennu og ofanvatnslögn sem tengd verður við núverandi fráveitukerfi flugvallarins. Hlaðið stækkar til vesturs og suðurs með jarðvegsskiptum, fyllingu og malbikun. Að auki verða settir upp nýir regnvatnsbrunnar og sandföng ásamt tilheyrandi jarðvinnu.

1.3 Áhrif framkvæmdanna á starfrækslu loftfara

Stæði 63 verður lokað á meðan á framkvæmdum stendur.
Stæði 64 og 65 verða að mestu opin en loka tímabundið í tvo daga meðan á fræsingu og malbikun stendur (veðurháður verkliður en áætlað um eina helgi í september).
Framkvæmdarsvæðið verður afmarkað með girðingu og lokunarmörkum á meðan verkið stendur yfir.

1.4 Lokaútfærsla á hlaðinu

 
 

2 Tengiliðir

Ef óskað er frekari upplýsinga, eða ef koma þarf athugasemdum á framfæri, vinsamlegast hafið samband við:
Netfang / Email:
egill.gudbergsson@isavia.is 
daniel.holmgrimsson@isavia.is 
 
 
Viðbætur við Flugmálahandbók felldar út gildi:
Engar / NIL
 
Efni eftirfarandi NOTAM skeyta birt í þessu upplýsingabréfi:
Engin / NIL
 

ENDIR / END