AIP Supplement – ÍSLAND / ICELAND
Isavia ANS ehf., Reykjavíkurflugvelli, 102 Reykjavík /
Isavia ANS, Reykjavik Airport, IS-102 Reykjavik, Iceland
Sími / Telephone: + 354 424 4000
ais@isavia.is
http://www.isavia.is/

 
AIRAC AIP SUP nr 02/2026
Effective from  22 JAN 2026
Published on 12 DEC 2025
 

 
Niðurfelling RCL / RCL Removal
Efnisleg ábyrgð: Isavia ANS

1 Inngangur

Þetta supplement segir frá ákvörðun Isavia ANS um að leggja niður kröfu um RCL skeyti fyrir íslenska flugstjórnarsvæðið (BIRD CTA) frá og með 19. mars 2026.

2 Innleiðing

Isavia ANS hætti útgáfu úthafsheimilda vorið 2024. Eftir innleiðinguna var enn krafa um að flugmenn sendu RCL skeyti áður en flogið var inn í NAT svæðið. Þetta leiddi til misskilnings þar sem kom fyrir að flugmenn, töldu sig mega breyta um flughæð í samræmi við það sem sent var í RCL skeytinu, án heimildar frá Flugstjórn. 
Vegna þessa mun BIRD CTA hætta að gera kröfu um RCL skeyti. 
Fluggagnakerfi flugstjórnarmiðstöðvarinnar í Reykjavik verður uppfært með nýju sjálfvirku svari til flugmanna sem senda RCL: RCL NOT REQUIRED BY BIRD. Sama svar verður notað hjá Flugfjarskiptum.
Flugvél skal aldrei klifra eða lækka án sérstakrar heimildar frá Flugstjórn. 
AIP ICELAND, NAT Doc 007 og NAT OCR OPS Bulletin verða uppfærð 19. mars 2026.

3 Tengiliðir

Ef óskað er frekari upplýsinga, eða ef koma þarf athugasemdum á framfæri, vinsamlegast hafið samband við:
 
Netfang / Email: procedures@isavia.is
 
 
Viðbætur við Flugmálahandbók felldar út gildi:

NIL
 
Efni eftirfarandi NOTAM skeyta birt í þessu upplýsingabréfi:
NIL
ENDIR / END