|
GEN 3.5.1 Ábyrgðaraðili þjónustunnar |
.Samgöngustofa er veðurfræðilegt stjórnvald á Íslandi. Veðurstofa Íslands fer með hlutverk aðalveðurstofu svæðisins og sinnir hún ásamt Isavia flugtengdri veðurþjónustu innan íslenska flugstjórnarsvæðisins þ.m.t. á flugvöllum. Þjónustan er veitt samkvæmt þjónustusamningi Samgöngu - og sveitarstjórnar- ráðuneytis við Isavia um flugleiðsögu og auk þess skv. samstarfssamningi milli Isavia og Veðurstofu Íslands. |
| Veðurstofa Íslands Bústaðavegi 9 150 Reykjavík, Ísland | Sími: | + 354 522 6000 | Símbréf: | + 354 522 6001 | AFS: | BIRKYMYX | Netfang: | office@vedur.is | Veffang: |
https://www.vedur.is/vedur/flugvedur / |
|
|
GEN 3.5.1.1 Viðeigandi skjöl |
Veðurþjónusta vegna flugleiðsögu er í samræmi við alþjóðareglur sem tilgreindar eru í eftirfarandi ritum: |
Reglugerð nr. 720/2019 um sameiginlegar kröfur fyrir veitendur þjónustu á sviði rekstrarstjórnunar flugumferðar/ flugleiðsöguþjónustu og á sviði starfsemi neta fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar og eftirlit með þeim. - Þýðing á (EU) 2017/373. |
Regulation (EU) 2017/373 - common requirements for providers of air traffic management/air navigation services and other air traffic management network functions and their oversight. |
ICAO Annex 3 - Meteorological Service for International Air Navigation. ICAO Doc 7030 - Regional Supplementary Procedures. ICAO Doc 8896 - Manual of Aeronautical MET Practices. ICAO Doc 9328 - Manual of Runway Visual Range Observing and Reporting Practices. ICAO Doc 9377 - Manual on Co-ordination between Air Traffic Services and Aeronautical Meteorological Services. ICAO Doc 9634 eANP NAT region. WMO Publication Nr. 9 Weather Reports. WMO Technical Regulations Nr 49. |
Frávik frá ofanskráðum ritum er tilgreint í GEN 1.7. |
|
Veðurstofa Íslands er hin opinbera veðurstofa landsins og útnefnd af ICAO sem aðalveðurstofa gagnvart flugleiðsögu. Hún sér um vöktun veðurs og útgáfu viðvarana (SIGMET) fyrir Reykjavík FIR/CTA, ásamt söfnun og dreifingu veðurskeyta. |
Isavia sér um gerð og dreifingu METARa á íslenskum flugvöllum nema í Reykjavík og Keflavík sem Veðurstofan hefur umsjón með. Isavia sér einnig um ýmsa vöktun og dreifingu upplýsinga um veðurfyrirbæri sem ógnað geta öryggi flugs. |
GEN 3.5.3 Veðurathuganir og veðurskeyti |
GEN 3.5.3.1 Athuganir á veðri við yfirborð |
Veðurathuganir á flugvöllum eru gerðar ýmist handvirkt eða með aðstoð sjálfvirkra mælitækja: |
- Reglubundnar veðurathuganir METAR
Á flugvöllunum í Keflavík, Reykjavík, Akureyri og Egilsstöðum eru gerðar reglulegar athuganir allan sólarhringinn, á hálftíma fresti í Keflavík en á klukkustunda fresti á öðrum flugvöllum. Athugunum frá Keflavík er útvarpað á VOLMET frá Shannon á Írlandi, (sjá VOLMET töflu).
|
- Sérstakar veðurathuganir
SPECI, eru gerðar þegar vart verður marktækra veðrabreytinga til hins verra eða betra milli reglubundinna athugana. Ef veður fer marktækt versnandi er strax sent út SPECI-skeyti en ef veður fer batnandi er skeyti ekki sent fyrr en batinn hefur staðið í 10 mínútur. Þessum skeytum er dreift á sama hátt og METAR skeytunum. SPECI veðurskeyti má einnig gefa út í sérstökum tilfellum að beiðni ATS og flugrekenda.
|
- METAR skeyti fyrir flugvellina á Bíldudal, Ísafirði, Gjögri, Grímsey, Húsavík, Hornafirði, Þórshöfn, Vopnafirði og Vestmannaeyjum eru send út á klukkustunda fresti á þjónustutíma flugvallanna, (sjá AD 2.3.7).
SPECI skeyti eru einnig send út við marktækar breytingar á veðri. METAR og SPECI athugunum er dreift á AMHS til ATS, flugfélaga og OPMET gagnabanka. Einnig eru upplýsingarnar birtar á heimasíðu Veðurstofunnar.
|
GEN 3.5.3.2 Vindur við yfirborð |
Á öllum íslenskum flugvöllum í töflunum hér á eftir er mæld vindátt, og einnig vindhraði með skálavindhraðamælum eða úthljóðsbylgju-vindnemum. Vindmælarnir eru í 7-10 m hæð frá jörðu. Á sérhverjum flugvelli eru mælarnir staðsettir þannig að þeir gefi raunsanna mynd af aðstæðum á flugvellinum, sjá flugvallakort. Lesið er af mælunum í viðkomandi flugumferðarþjónustudeild. Í Reykjavík fer aflestur einnig fram á Veðurstofu Íslands. Vindhraði er tilgreindur í hnútum. |
|
Skyggni í veðurathugunum er ríkjandi skyggni. Skyggni er metið út frá þekktum vegalengdum í umhverfinu. Þegar minnsta skyggni er frábrugðið ríkjandi skyggni, og 1) minna en 1500 m eða 2) minna en 50% af ríkjandi skyggni og undir 5000 m; skal einnig gefa minnsta skyggni og átt þess miðað við höfuðáttirnar átta. Ef minnsta skyggni er mjög mismunandi eftir áttum skal sú átt tilgreind sem hefur mesta þýðingu fyrir flugið. Þegar breytingar á skyggni eru örar og ekki hægt að ákvarða ríkandi skyggni, skal aðeins tilgreina minnsta skyggni án tilvísunar til áttar. |
GEN 3.5.3.4 Flugbrautarskyggni, RVR |
Á Akureyri, Egilsstöðum, Keflavík og í Reykjavík eru sérstakir flugbrautarskyggnismælar (sjá flugvallakort) sem mæla RVR (Runway Visual Range) sem er tilgreint í METAR þegar skyggni eða RVR mælist undir 1500 metrum. |
Lágmarksgildi mælanna er 10 metrar. |
RVR er tilgreint í 25 metra þrepum upp að 400 metrum, 50 m þrepum milli 400 og 800 metra og 100 metra þrepum upp að 1500 metrum. |
|
Skýjahæð er metin á öllum flugvöllum en með aðstoð skýjahæðamæla á flugvöllunum á Akureyri, Egilsstöðum, Keflavík, Reykjavík, Ísafirði, Hornafirði, Húsavík og Vestmannaeyjum. |
Skýjategund er ekki tilgreind nema um háreist skúraský (TCU eða CB) sé að ræða |
GEN 3.5.3.6 Hiti / daggarmark |
Lofthiti og daggarmark er mæld og tilgreind í METAR frá öllum flugvöllum. |
|
Loftþrýstingur er gefinn upp í einingunni hPa sem jafngildir millibörum. |
|
Vindhvörf í lægri hæðum eru ekki mæld með tækjum á íslenskum flugvöllum. Upplýsingum um vindhvörf frá flugvélum við lendingu og flugtak, eða upplýsingum fengnum eftir öðrum leiðum, er hægt að koma á framfæri í METAR eða MET- Reports (í gegnum ATIS) ef um langvarandi vindhvörf er að ræða. Einnig er leitast við að veita upplýsingar munnlega um vindhvörf við flugvelli hvort sem um er að ræða skammvinn eða langvinn fyrirbæri. |
GEN 3.5.3.9 Veðurmælingar í háloftum - háloftarit |
Reglubundin veðurmæling í háloftum á Keflavíkurflugvelli er gerð tvisvar á sólarhring, kl. 11:00 og 23:00. Mælingin felur í sér sleppingu loftbelgs með léttum mælitækjum. Starfsmenn Veðurstofu Íslands á Keflavíkurflugvelli sjá um framkvæmd. Fyrir framkvæmd skal heimild til sleppingar loftbelgs fengin frá flugstjórnarþjónustu Keflavíkurflugvallar. Einnig skal fengin heimild frá flugstjórnarmiðstöð Isavia í Reykjavik. |
Reglubundin veðurmæling í háloftum á Egilsstaðaflugvelli er gerð einu sinni á sólarhring, kl. 11:00 frá 1. september til 10.apríl. Mælingin felur í sér sleppingu loftbelgs með léttum mælitækjum. Flugvallarstarfsmenn Isavia á Egilsstaðaflugvelli sjá um framkvæmd, Fyrir framkvæmd skal heimild til sleppingar loftbelgs fengin frá flugupplýsingaþjónustu vallarins (AFIS). Einnig skal heimild fengin frá flugstjórnarmiðstöð Isavia í Reykjavík. |
Óreglubundnar mælingar: Við ákveðnar aðstæður, s.s. eldgos, er veðurmælingum í háloftum fjölgað á Keflavíkurflugvelli og Egilsstaðaflugvelli í fjórar á sólarhring. Heimildum til sleppinga skal aflað á sama hátt og þegar um reglubundnar veðurmælingar í háloftum er um að ræða. Gera skal grein fyrir óreglubundnum veðurmælingum í háloftum í NOTAM. |
Færanleg háloftastöð er notuð til veðurmælinga í háloftum á meðan á eldgosi stendur og er staðsett nálægt þeirri eldstöð sem gýs hverju sinni. Einnig er slík stöð notuð til veðurfræðirannsókna og við þjálfun starfsmanna VÍ. Sérfræðingar Veðurstofu Íslands sjá um framkvæmd slíkra mælinga. Fyrir framkvæmd skal heimild til sleppingar fengin frá flugstjórnarmiðstöð Isavia í Reykjavík, en sé sleppingin í nágrenni flugvallar skal heimild einnig fengin frá viðkomandi flugstjórnarþjónustu/ flugupplýsingaþjónustu. Gera skal grein fyrir sleppingum úr færanlegri háloftastöð í NOTAM. |
|
GEN 3.5.3.10 Veðurstöðvar |
Sjá töflur í köflum GEN 3.5.3.11 & GEN 3.5.3.12. |
GEN 3.5.3.11 Skrá um veðurathugunarstöðvar fyrir millilandaflugleiðsögu |
INDEX NO
|
STATION
|
COORDINATES
|
HEIGHTS
|
REMARKS
|
1
|
2
|
3
|
4
|
5
| 030 | Reykjavík I.
| 6408N 02154W | 52 m | | 005 | Bolungarvík | 6610N 02315W | 26 m | | 063 | Akureyri | 6541N 01806W | 23 m | Observation taken in City | 089 | Egilsstaðaflugvöllur II.
| 6516N 01424W | 23 m | | 097 | Dalatangi | 6516N 01335W | 9 m | | 082 | Höfn | 6416N 01512W | 8 m | | 064 | Kirkjubæjarklaustur - Stjórnarsandur I.
| 6348N 01801W | 22 m | | 048 | Vestmannaeyjar | 6324N 02017W | 118 m | | 018 | Keflavik Aerodrome III.
| 6358N 02235W | 47 m | |
- Á klst. fresti / Hourly reports
- Synop skeyti er búið til úr sjálfvirkri athugun og METAR skeyti /
Synop report is made from an automatic weather station and a METAR - Á hálftíma fresti. Allar aðrar stöðvar athuga á 3ja klst. fresti (t.d. 00. 03. 06. o.s.frv.) / Half hourly reports. All other stations report at synoptic hours (i.e. 00. 03. 06. etc.)
|
|
GEN 3.5.3.12 Veðurstöðvar og veðurmyndavélar |
|
GEN 3.5.3.13 Veðurathuganir og veðurskeyti |
Name of station / ICAO Location Indicator
|
Type and frequency of Observation
|
Types of MET reports
|
Observation System and Site(s)
|
Hours of Operation (UTC)
|
Climatological information
|
1
|
2
|
3
|
4
|
5
|
6
| BIKF - KEFLAVÍK / Keflavik | Half Hourly | METAR | Ultrasonic Wind Sensor Cup Anemometer RWY RVR EQPT Ceilometer | H24 |
Íslenska / Icelandic https://www.vedur.is/vedur/%20flugvedur/vedurfar/
Enska / English https://en.vedur.is/weather/%20aviation/climate/
| BIRK - REYKJAVÍK / Reykjavik | Hourly | METAR SPECI | Cup Anemometer RWY RVR EQPT Ceilometer | H24 | BIAR - AKUREYRI / Akureyri | Hourly | METAR SPECI | Cup Anemometer RWY RVR EQPT Ceilometer | H24 | BIEG - EGILSSTAÐIR / Egilsstadir | Hourly | METAR SPECI | Cup Anemometer RWY RVR EQPT Ceilometer | H24 | BIBD - BÍLDUDALUR / Bildudalur | Hourly during ATS Operations Hours | METAR SPECI | Cup Anemometer | See AD 2.3.7 | BIIS - ÍSAFJÖRÐUR / Isafjordur | Hourly during ATS Operations Hours | METAR SPECI | Ultrasonic Wind Sensor Ceilometer | See AD 2.3.7 | BIGJ - GJÖGUR / Gjogur | Hourly during ATS Operations Hours | METAR SPECI | Cup Anemometer | See AD 2.3.7 | BIGR - GRÍMSEY / Grimsey | Hourly during ATS Operations Hours | METAR SPECI | Cup Anemometer | See AD 2.3.7 | BIHU - HÚSAVÍK / Husavik | Hourly during ATS Operations Hours | METAR SPECI | Cup Anemometer Ceilometer | See AD 2.3.7 | BITN - ÞÓRSHÖFN / Thorshofn | Hourly during ATS Operations Hours | METAR SPECI | Cup Anemometer | See AD 2.3.7 | BIVO - VOPNAFJÖRÐUR / Vopnafjordur | Hourly during ATS Operations Hours | METAR SPECI | Cup Anemometer | See AD 2.3.7 | BIHN - HORNAFJÖRÐUR / Hornafjordur | Hourly during ATS Operations Hours | METAR SPECI | Cup Anemometer Ceilometer | See AD 2.3.7 | BIVM - VESTMANNAEYJAR / Vestmannaeyjar | Hourly during ATS Operations Hours | METAR SPECI | Ultrasonic Wind Sensor Ceilometer | See AD 2.3.7 |
|
|
Veðurþjónusta vegna flugs er veitt allan sólarhringinn á Veðurstofu Íslands. Hægt er að nálgast hana með ýmsu móti, eins og beinu sambandi við veðurfræðing, á símsvara eða í gegum netið. |
- Bein viðtöl við veðurfræðinga fást aðeins á Veðurstofu Íslands, Bústaðavegi 9.
Fyrir notendur á öðrum flugvöllum fást bein viðtöl aðeins gegnum síma. Upplýsingar fást með því að hringja í síma + 354 522 6000.
|
- Á símsvara Veðurstofunnar eru almenn flugveðurskilyrði á Íslandi lesin inn, á ensku, þrisvar á sólarhring.
|
- Á heimasíðu Veðurstofunnar er hægt að nálgast veðurupplýsingar fyrir flug.
|
- Upplýsingar fyrir millilandaflug samanstanda af WAFS spákortum fyrir marktækt veður (SWC), háloftavinda- og hitakortum og nýjustu fáanlegum flugvallaspám bæði fyrir áfangastað og varaflugvelli þeirra auk gildandi viðvarana um hættulegt veður, SIGMET, veðurtunglamyndir og fleira
|
- Til undirbúnings innanlandsflugi, bæði VFR og IFR allt upp í FL 180. Flugveðurskilyrði, yfir Íslandi, eru gefin út á ensku. Sjá ofan. Flugmenn geta meðal annars nálgast þessar upplýsingar með því að hringja í síma:
+354 902 0600 og velja 5. Gildistími þessara upplýsinga er: 07:00-12:00, 12:00-17:00 og 17:00-23:00. Flugveðurskilyrði yfir Íslandi innihalda veðurlýsingu og spár fyrir helstu veðurþætti sem viðkoma flugi, eins og vinda- og hitaspár fyrir fluglög FL050, FL100 og FL180, auk vindaspár í fjallahæð. Spár eru einnig gerðar fyrir veðurfyrirbæri, skyggni og skýjafar (skýjahæð eða lóðrétt skyggni miðast við yfirborð jarðar), frostmarkshæð, ísingu og ókyrrð.
|
- Veðurathuganir frá flugvöllum eru skráðar eins og tilgreint er í GEN 3.5.3.11.
|
GEN 3.5.4.1 Veðurspár (TAF) |
Name of Station
|
Type of Services
|
Hours of Service
|
Time of Validity
|
Time of Issue
|
1
|
2
|
2
|
3
|
5
| Keflavik - BIKF Reykjavik - BIRK Egilsstadir - BIEG Akureyri - BIAR | TAF TAF AMD TAF COR | H24 | 00 - 24 03 - 03 06 - 06 09 - 09 12 - 12 15 - 15 18 - 18 21 - 21 | 23 02 05 08 11 14 17 20 | Isafjordur - BIIS Bildudalur - BIBD Husavik - BIHU Hornafjordur BIHN Vestmannaeyjar - BIVM |
TAF TAF AMD TAF COR |
During ATS Hours of Services See AD 2.3.7 | 08 - 17 11 - 20 14 - 23 17 - 02 | 07:30 10:30 13:30 16:30 |
|
GEN 3.5.5 Beiðni frá flugrekendum |
Beiðni frá flugrekendum um veðurupplýsingar fyrir flug á föstum áætlunartímum og leiðum er afgreidd samkvæmt fyrirfram ákveðnu samkomulagi milli flugrekstraraðila og Veðurstofunnar. Beiðni frá flugrekendum um veðurupplýsingar fyrir flug utan fastra áætlunartíma eða flug samkvæmt breyttri áætlun er yfirleitt samkomulagsatriði, en best er að hún liggi fyrir ekki seinna en 2 klst. fyrir áætlaðan brottfarartíma. |
Beiðnin skal innihalda allar nauðsynlegar upplýsingar um fyrirhugað flug (sjá ICAO Annex 3, grein 2.3.4) |
Þegar veðurupplýsingar vegna flugs hafa verið sóttar alllöngu fyrir ETD ætti að hafa samband við Veðurstofuna rétt fyrir brottför til að kanna hugsanlegar breytingar. |
GEN 3.5.6 Upplýsingar frá loftförum |
Samkvæmt Annex 3, kafla 5, skal tilkynna Veðurstofunni um allt veður sem skiptir máli (significant) sem loftfar hefur orðið fyrir á flugi og í aðflugi eða klifri til/frá flugvöllum innan Reykjavíkur FIR/CTA. |
Engar formlegar staðarákvarðanir hafa verið gefnar út þar sem tilkynna skal veður. Tilkynningar skulu framkvæmdar í samræmi við Regional Supplementary Procedures, Doc 7030. |
|
GEN 3.5.7 VOLMET-þjónusta |
Name of Station
|
Call Sign ID (EM)
|
Frequency
|
Broadcast Period
|
Hours of Service
|
Aerodromes Included
|
Contents / Format / Remarks
|
1
|
2
|
3
|
4
|
5
|
6
|
7
| KEFLAVIK | SHANNON VOLMET |
3413 KHZ HN (during night) 5505 KHZ H24 8957 KHZ H24 13264 KHZ HJ (during day) |
H+00 to H+25 and H+30 to H+55 | H24 | KEFLAVIK | Nil |
|
Upplýsingar um veður á Keflavíkurflugvelli er hægt að fá í gegnum VOLMET í Shannon á Írlandi. |
GEN 3.5.8 SIGMET-þjónusta |
|
Veðurstofa Íslands vaktar veður og veðurfyrirbæri sem ógnað gætu flugöryggi, og einnig sér hún um gefa út og dreifa viðvörunum (SIGMET) þessu viðkomandi. Vöktunarsvæði Veðurstofunnar er Reykjavík FIR/CTA. Sérstakar viðvaranir fyrir einstaka flugvelli eru ekki gefnar út, en aftur á móti gilda viðvaranir sem Veðurstofan gefur út fyrir landið í almennum spám, jafnt fyrir flugvelli sem aðra staði á landinu. |
GEN 3.5.8.2 Svæðaveðurþjónusta |
Svæðaveðurþjónusta sem veitt er af Veðurstofu Íslands byggist meðal annars á upplýsingaþjónustu gagnvart ATS- deildum innan Reykjavík FIR/CTA og útgáfu SIGMETa. |
SIGMET-skeyti er gefið út hvenær sem eitthvað af eftirfarandi fyrirbærum koma fyrir eða búist er við innan Reykjavík FIR/CTA: |
Verulegt þrumuveður | TS (GR) | Fellibyljir | TC (+ nafn fellibyls) | Mikil ókyrrð | SEV TURB | Mikil ísing | SEV ICE (FZRA) | Miklar fjallabylgjur | SEV MTW | Víðáttumikið moldrok | HVY DS | Víðáttumikill sandstormur | HVY SS | Gosmökkur | VA (+ nafn eldstöðvar) |
|
SIGMET eru skráð samkvæmt forskrift og reglum ICAO Doc 8400 (Abbreviations and Codes). Þau eru númeruð fyrir hvern dag, sem hefst kl. 0001. Hvert veðurfyrirbæri fær sinn bókstaf og byrjað á A. Það er A01, B01, o.s.frv. SIGMET gilda allt að fjórum klst. nema eldgosa-SIGMET sem hefur allt að sex klst. gildistíma. |
Veðurstofa Íslands sér um útsendingu og dreifingu Reykjavík FIR/CTA SIGMETa. |
Name of MWO / Location Indicator
|
Hours
|
FIR or CTA served
|
Type of SIGMET validity
|
Specific Procedures
|
ATS Unit served
|
Additional Information
|
1
|
2
|
3
|
4
|
5
|
6
|
7
| Reykjavik-BIRK | H24 | Reykjavik FIR/ CTA |
Weather SIGMETs for Reykjavik FIR/ CTA Volcano SIGMETs for Reykjavik FIR/ CTA consisting of preeruption warnings, and also warnings during the eruptions | NIL | Reykjavik ACC RCC TWR |
Languages: English and Icelandic Charts Available: S, U, P, W, T MET information/ flight folders are available from flight dispatchers, for example at Keflavik Airport. If requested, flight folder and weather briefing by a meteorologist is available by telephone at IMO Reykjavik tel: +354 5226000 |
Note:
Charts Available: S = surface analysis (current chart); U = upper air analyses (3 = 300 h Pa); P = prognostic upper air chart ; W = significant weather chart ; T = tropopause chart |
|
GEN 3.5.9 Aðrar sjálfvirkar veðurþjónustur |
Flugveðurupplýsingar er hægt að nálgast á internetinu. |
|
Sækja þarf um aðgang að Northavimet. Password |