|
|
Loftför sem starfrækt eru innan Reykjavík FIR skulu fylgja ákvæðum ICAO, viðauka 6, - Rekstur loftfara, DOC 7030 - Regonal Supplementary Procedures, NAT DOC 007 - North Atlantic Operations and Airspace Manual og EASA AIR OPS ESB reglugerð 965/2012. |
Tilmæli ICAO viðauka 10, hluti IV gr. 4.3.5.3.2 í gildi í íslensku loftrými sbr. AUR.ACAS.1005 í reglugerð ESB 1332/2011. |
Öll loftför sem starfrækt eru samkvæmt blindflugsreglum skulu hafa búnað til að geta verið í fjarskiptasambandi við flugumferðarþjónustu. |
Búnaður þessi skal vera að minnsta kosti ein VHF talstöð og eitt langdrægt fjarskiptatæki, HF eða gervihnattatæki (SAT-COM/CPDLC). |
Ath.: Krafa um langdrægt fjarskiptatæki á ekki við fyrir löftför sem starfrækt eru innan VHF drægis. |
Öll loftför sem starfrækt eru samkvæmt blindflugsreglum skulu búin leiðsögubúnaði sem tryggir að hægt sé að fylgja flugheimild flugumferðarstjórnar. |
Öll loftför sem starfrækt eru samkvæmt blindflugsreglum skulu búin ratsjársvara sem sendir frá sér hæðarupplýsingar í samræmi við kröfur í ICAO NAT DOC 007. |
Öll loftför sem fljúga innan FAXI TMA skulu búin ratsjársvara. |
Öll loftför skulu búin neyðarsendi (ELT) sem sendir samtímis á 121.500 MHZ og 406.000 MHZ.
|
Ath: Fis eru undanþegin ákvæði um neyðarsendi. |
Öll loftför skulu búin þeim lífsviðhalds- og merkjabúnaði fyrir alla um borð fyrir það svæði sem áætlað er að fljúga yfir sem krafist er í ICAO Annex 6, hluta II og ESB reglugerð 965/2012. |