Loftför á flugi geta haft áhrif á hegðun fugla og dýra sem og á upplifun fólks af náttúru landsins. |
Þegar varptími fugla stendur sem hæst þarf að sýna sérstaka aðgát þannig að ekki hljótist truflun af á þekktum varpsvæðum, t.d. í nágrenni við fuglabjörg. Þetta er mikilvægt, bæði til að tryggja öryggi flugs og koma í veg fyrir skaða eða truflun á dýralífi. |
Þeim tilmælum er beint til flugmanna að fljúga ekki neðar en 1000 fet yfir fjölförnum ferðamannastöðum. |
Umhverfisstofnun kann að gefa út sérstakar reglur og tilmæli varðandi flug yfir friðlýstum svæðum og fjölförnum ferðamannastöðum. |
Slíkt er að finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar: |
Bannsvæði Þjórsárvera er í gildi frá 10. maí til 10. ágúst þar sem flug loftfara er bannað neðan við 5000 fet MSL. |
|
Friðlýst búsvæði fugla eru auðkennd á korti á heimasíðu Umhverfisstofnunar og eru eftirfarandi: |
|
Árekstur við villtar lífverur, þ.m.t. fugla sem veldur tjóni á loftfari eða því að mikilvæg þjónusta tapast eða raskast, skal tilkynntur í samræmi við reglugerð um tilkynningu atvika í almenningsflugi sem og greiningu á og eftirfylgni með þeim. |
Eyðublöð fyrir slíkar tilkynningar er að finna á vefsíðu Samgöngustofu: |
http://www.samgongustofa.is/eydublod/#q=bird+strike Senda skal tilkynninguna til Samgöngustofu eða á netfangið mandatory.reporting@icetra.is. |
Þrír þjóðgarðar eru á Íslandi; Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull, Þingvallaþjóðgarður og Vatnajökulsþjóðgarður og yfir 100 önnur friðlýst svæði. |
Upplýsingar um mörk garðanna og annara friðlýstra svæða er að finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar . |
Þeim tilmælum er beint til flugmanna að fljúga ekki neðar en 1000 fet yfir fjölförnum ferðamannastöðum. |