ENR 1.10 FLUGÁÆTLANIR

 

ENR 1.10.1 Starfshættir við afhendingu flugáætlana

Gerðar skulu flugáætlanir í samræmi við reglugerð 770/2010, áður en framkvæmt er:
  1. flug eða hluti þess, sem njóta skal flugstjórnar- þjónustu,
  2. allt blindflug,
  3. flug yfir landamæri ríkja,
  4. flug sem vill njóta viðbúnaðarþjónustu.
(fyrir viðbótar upplýsingar um flugáætlanir fyrir millilandaflug sjá ENR 1.8.3).

ENR 1.10.1.1 Afhendingatími

Hafa skal í huga þarfir flugumferðarþjónustudeilda um tímanlegar upplýsingar í þeim loftrýmum sem flugleiðin liggur um.
Flugáætlun skal ekki leggja inn með meiri fyrirvara en 120 klukkustundum fyrir áætlaðan hlaðfaratíma flugsins.
Afhenda skal flugáætlun með eftirfarandi lágmarksfyrirvara:
  1. 30 mínútum fyrir brottför í innanlandsflugi;
  2. 60 mínútum fyrir brottför í millilandaflugi; nema
  3. 180 mínútum fyrir brottför í millilandaflugi til Evrópu (NMOC).

ENR 1.10.1.2 Afhendingastaður

Afhenda skal flugáætlanir í samræmi við ENR 1.10.1.4.

ENR 1.10.1.3 Viðbúnaðarþjónusta

Veitt er viðbúnaðarþjónustu vegna loftfars sem: 
  1. nýtur flugstjórnarþjónustu, 
  2. hefur lagt inn flugáætlun eða sem vitað er um af viðkomandi flugumferðarþjónustu að því marki sem það  er gerlegt, athugið þó varðandi sjónflug þá er einungis fylgst með áætluðum lendingartíma á ákvörðunarstað. Ef flugmaður vill loka flugáætlun fyrir lendingu skal hann kalla í næstu flugumferðarþjónustudeild og segja: „LOKA PLANI“. Við það lýkur viðbúnaðarþjónustu, og
  3. vitað er eða fullvíst er talið að sæti ólögmætum afskiptum
Ef flugmaður vill loka flugáætlun fyrir lendingu skal hann kalla í næstu flugumferðarþjónustudeild og segja: „LOKA PLANI“. Við það lýkur viðbúnaðarþjónustu.

ENR 1.10.1.4 Form og innihald flugáætlana

Skriflega flugáætlun skal leggja fram í samræmi við staðlaða flugáætlun ICAO, eða fylgja AFTN staðli.
Hægt er að leggja inn flugáætlun í gegnum vefgátt.
Til að nota vefgátt skal sækja um aðgang á fpl@isavia.is, sjá nánari upplýsingar á https://www.isavia.is/fyrirtaekid/c-forflugsupplysingar.
Ef vefgátt eða netpóstur er notaður skal sendandi leita staðfestingar á því að flugáætlunin hafi verið samþykkt.
Þegar lögð er inn flugáætlun í gegnum síma skal fylgja staðlaðri flugáætlun ICAO.

ICAO FPL eyðublað er aðgengilegt á heimasíðu Isavia.

Ef vefgátt er ekki notuð má leggja inn flugáætlun með því að fylla eyðublaðið út og senda síðan sem viðhengi með netpósti til: fjarrit@isavia.is
Sjá nánar um innihald ICAO FPL eyðublaðs í ENR 1.8.3.

ENR 1.10.1.5 ATS-leiðum fylgt

Hafi hlutaðeigandi flugumferðarþjónustuveitandi ekki heimilað annað eða hlutaðeigandi flugstjórnardeild fyrirskipað annað, skal stjórnað flug, að svo miklu leyti sem því verður við komið:
  1. fara eftir skilgreindri miðlínu leiðarinnar þegar flogið er á ákveðinni ATS-leið, eða
  2. þegar farin er önnur leið skal flogið beint á milli flugleiðsögustöðva eða staða sem ákvarða þá leið.

ENR 1.10.1.5.1 Skiptistaður

Svo framarlega, sem skilyrði greinar 1.10.1.5 eiga ekki við, skal loftfar á hluta ATS leiðar, sem ákveðin er af fjölstefnuvitum (VOR), skipta flugleiðsöguviðtöku frá VOR stöðinni fyrir aftan það á VOR-stöðina framundan, við eða sem næst skiptistaðnum, þar sem hann er tilgreindur.

ENR 1.10.1.5.2 Tilkynningar um frávik

Tilkynna skal hlutaðeigandi flugumferðarþjónustudeild frávik frá þeim skilyrðum, sem tilgreind eru í grein 1.10.1.5.

ENR 1.10.1.5.3 Óviljandi frávik

Ef stjórnað flug víkur óviljandi frá gildandi flugáætlun skal brugðist við á eftirfarandi hátt:
  1. Frávik frá ferli: Ef loftfar hefur farið út af fyrirhuguðum ferli skulu tafarlausar ráðstafanir gerðar til að breyta stefnu þess svo að það komist aftur inn á fyrirhugaðan feril sinn svo fljótt sem gerlegt er.
  2. Frávik frá heimiluðu Mach númeri/sýndum flughraða skal tilkynnt hlutaðeigandi flugumferðarþjónustudeild án tafar.
  3. Frávik frá Mach númeri/réttum flughraða: ef Mach númer/réttur flughraði í leiðarflugi breytist um plús eða mínus 10 hnúta eða meira frá gildandi flugáætlun, skal tilkynna það hlutaðeigandi flugumferðarþjónustudeild án tafar.
  4. Breyttur áætlaður tími: að undanskildu þegar ADS-C er í notkun í loftrými þar sem ADS-C þjónusta er veitt,ef áætlaður tími við næsta stöðumið, við mörk flugupplýsingasvæðis eða við áætlaðan lendingarstað breytist - hvert af þessu sem fyrst kemur um meira en tvær mínútur frá því sem flugumferðarþjónustu hefur verið tjáð eða um hvern þann tíma, sem hlutaðeigandi veitandi flugumferðarþjónustu eða svæðisbundinn samningur um flugleiðsögu ákveður, þá skal svo fljótt sem verða má tilkynna hlutaðeigandi flugumferðarþjónustudeild breyttan áætlaðan tíma.

ENR 1.10.1.6 Leyfi til sérstaks flugs

Beiðni um leyfi til sérstaks flugs skal senda til Samgöngustofu.

ENR 1.10.2 Kerfi endurtekinna flugáætlana

Kerfi endurtekinna flugáætlana (RPL) innan Reykjavik FIR er ekki notað lengur vegna krafna um einkvæmar upplýsingar sem bundnar eru búnaði loftfara, og gerðar eru kröfur um í flugáætlunum. Í boði er þó að nota þjónustu NMOC fyrir flug til/frá IFPZ, sjá NMOC Handbook - IFPS Users Manual.

ENR 1.10.3 Breytingar á áður útgefnum flugáætlunum

Með hliðsjón af ákvæðum ENR 1.10.1.5 skal tilkynna hlutaðeigandi flugumferðarþjónustudeild, við fyrstu hentugleika, allar breytingar, sem gerðar eru á flugáætlununum vegna blindflugs eða stjórnaðs sjónflugs.
 
Hægt er að vinna breytingar á flugáætlun í vefgátt allt þar til óskað hefur verið eftir heimild frá viðkomandi flugumferðarþjónustudeild. 
Vegna annars sjónflugs skal tilkynna sama aðila verulegar breytingar á flugáætlun, við fyrstu hentugleika.
Ath.: Ef FPL er lagt inn til að fá flugumferðarstjórnarþjónustu skal loftfarið bíða eftir flugheimild áður en flugi er haldið áfram í samræmi við breytta flugáætlun. Ef FPL er lagt inn til að fá flugupplýsingaþjónustu skal loftfarið bíða eftir staðfestingu á móttöku frá viðkomandi þjónustuaðila.