|
AD 1.2.1 Björgunar- og slökkviviðbúnaður
|
Á flugvöllum með reglubundið áætlunarflug og/eða óreglubundið áætlunarflug með farþega er björgunar- og slökkviviðbúnaður í samræmi við gildandi reglur.
|
Ath - Fyrir þyrluvelli gilda sérstakar reglur.
|
Upplýsingar um þjónustu og umfang hennar er að finna á blaðsíðu viðkomandi flugvallar.
|
Í reglubundnu áætlunarflugi og /eða óreglubundnu áætlunarflugi með farþega er óheimilt að nota flugvelli sem ekki hafa björgunar- og slökkvibúnað.
|
Björgunar- og slökkviþjónusta er flokkuð niður í töflu hér að neðan. Tímabundnar breytingar verða tilkynntar með NOTAM.
|
Björgunar- og slökkviþjónusta Flokkun flugvalla / Nauðsynlegt vatnsmagn í lítrum til að framleiða froðu samkvæmt flokki B.
|
Aerodrome category
|
Aeroplane overall length
|
Maximum fuselage width
|
Water (L)
|
Discharge rate foam solution / minute (L)
|
1
|
2
|
3
|
4
|
5
| 1 | 0m up to but not including 9m | 2m | 230 | 230 | 2 | 9m up to but not including 12m | 2m | 670 | 550 | 3 | 12m up to but not including 18m | 3m | 1 200 | 900 | 4 | 18m up to but not including 24m | 4m | 2 400 | 1 800 | 5 | 24m up to but not including 28m | 4m | 5 400 | 3 000 | 6 | 28m up to but not including 39m | 5m | 7 900 | 4 000 | 7 | 39m up to but not including 49m | 5m | 12 100 | 5 300 | 8 | 49m up to but not including 61m | 7m | 18 200 | 7 200 | 9 | 61m up to but not including 76m | 7m | 24 300 | 9 000 | 10 | 76m up to but not including 90m | 8m | 32 300 | 11 200 |
|
|
AD 1.2.2.1 Fyrirkomulag vetrarviðhalds
|
Snjóruðningur, mælingar, aðgerðir til úrbóta og tilkynningar um ástand flugbrauta.
|
Frá 1. október til 30. apríl ár hvert verður á neðangreindum flugvöllum haldið uppi eftirfarandi þjónustu
|
- Eftirlit með athafnasvæði og flughlöðum til að kanna ís, snjó, krap eða vatn.
- Bremsumælt eða bremsuskilyrði metin þegar ís, snjór og/eða krap þekja meira en 10% af þeirri flugbraut sem um er að ræða og akbrautir og flughlöð eftir því sem kostur er.
- Viðeigandi ráðstafanir gerðar til að halda flugbrautum, akbrautum og flughlöðum opnum.
- Tilkynnt er um skilyrði í liðum a. til c. hér að ofan.
|
Vetrarviðhald er á öllum áætlunarflugvöllum innanlands auk alþjóðavalla.
|
Alþjóðavellir eru:
- Akureyri
- Egilsstaðir
- Reykjavík
- Keflavík
|
AD 1.2.2.2 Eftirlit á athafnasvæðum
|
Fylgst er með ástandi athafnasvæða og flughlöðum á auglýstum opnunartíma flugvallarins. Hægt er að veita vetrarþjónustu utan opnunartíma sé þess óskað.
|
AD 1.2.2.3 Bremsumælingar og aðgerðir
|
Dýpt snjóalaga eða kraps er mæld með stiku. Mælingar eru gerðar víðs vegar um svæðið og reiknað út meðaltal. Á flugbraut er meðaltal reiknað fyrir hvern þriðjung brautar.
|
- Mælt viðnám
Hvenær sem upplýsingar um bremsuskilyrði eru notaðar til að meta stöðvunarvegalengd og stýrimöguleika loftfars er nauðsynlegt að hafa í huga að mælt viðnám hefur eingöngu tölugildi fyrir viðkomandi bremsumælingatæki.
|
- Eftirfarandi kerfi við mælingar munu gilda:
- Samfelld bremsumæling þar sem viðnám er mælt samfellt með brautarmæli (SFT).
- TAPLEY-bremsumæling (TAP) sem einungis mælir hámarksviðnám við hverja bremsu.
- Samfelld bremsumæling þar sem viðnám er mælt samfellt með bremsumæli Mu Meter (MUM).
|
Allar mælingar eru framkvæmdar í samræmi við leiðbeiningar frá framleiðanda um notkun tækjanna. Mælingar eru gerðar með fjögurra metra millibili báðum megin við miðlínu flugbrautar.
|
- Samfelldar bremsumælingar (SFT/MUM) eru framkvæmdar á Akureyri, Egilsstöðum, Keflavík, Reykjavík, Vestmannaeyjum, Bíldudal, Höfn í Hornafirði og á Húsavík.
Tapley-bremsumælingar eru framkvæmdar á öllum öðrum flugvöllum, sjá AD 2.
|
- Bremsuskilyrði eru metin ef ekki er hægt að mæla viðnám vegna skorts á tækjum eða af öðrum ástæðum.
|
- Þegar ís, snjór eða krap þekja 10% eða minna af flugbraut er viðnám ekki mælt og bremsuskilyrði ekki metin. Ef vatn er á flugbraut við þessi skilyrði er brautin tilkynnt blaut.
|
AD 1.2.2.4 Aðgerðir til að tryggja notkun á athafnasvæðum
|
Snjóhreinsun og aðgerðir til að bæta bremsuskilyrði verða framkvæmdar eins lengi og skilyrði á athafnasvæði hindra öryggi og reglufestu flugumferðar.
Snjóhreinsun - forgangur
|
Forgangsröðun sjóhreinsunar á athafnarsvæðum:
- Flugbraut, sem er í notkun, tengdar akbrautir og flughlöð
- Akbrautir
- Flughlöð og svæði við flugskýli
- Aðrar flugbrautir
- Önnur svæði
|
Flugbrautir eru hreinsaðar í fulla breidd en þó getur undir sérstökum kringumstæðum þurft að opna flugbraut tímabundið þó að brautin sé einungis hreinsuð 30 metra breið. Snjóhreinsun telst ekki lokið fyrr en braut er hreinsuð í fulla breidd.
|
Gripið verður til aðgerða til að bæta bremsuskilyrði þegar mælt viðnám á flugbrautum og akbrautum er lægra en kveður á um í viðhaldsáætlun í Viðauka 14 (ICAO) , bindi I, viðhengi A, kafla 7.
|
Sandur er notaður til að bæta bremsuskilyrði við ákveðin brautarskilyrði. Kornastærð er frá 1 mm til 5 mm. Sandi verður dreift á braut að minnsta kosti út í 15 m frá miðlínu brautar.
|
|
Tilkynningar um ástand alþjóðaflugvalla (sjá AD 1.2.2.1 ) eru sendar til flugturns og flugstjórnarmiðstöðvar á SNOWTAM-eyðublöðum. Flugstjórnarmiðstöð sendir tilkynningarnar áfram til réttra aðila sbr. flugmálahandbók, kafli GEN 3.1. Á öðrum áætlunarflugvöllum eru brautarskilyrði gefinn upp í METAR.
|
- Þegar ís, snjór eða krap er ekki lengur á brautum og sandur ekki lengur notaður verður tilkynnt að SNOWTAM-tilkynningum sé hætt. Útgáfu SNOWTAM-tilkynninga verður þá hætt þar til næsta vetur
|
Viðbótarupplýsingar vegna vetrarviðhalds verða birtar sem upplýsingabréf (AIC).
|
Orðaskýringar og skilgreiningar:
|
Krap: Er vatnsmettaður snjór sem skvettist þegar flötum fæti er skellt niður. Þyngd 0,5 til 0,8.
|
Ath. Samblanda af ís, snjó og/eða vatni getur, sérstaklega í snjókomu, slyddu eða rigningu, myndað úrkomu sem er þyngri en 0,8. Þessi úrkoma er gegnsæ fremur en mött og þekkist þannig frá krapi.
|
Snjór (á jörðu)
- Þurr snjór er snjór sem hægt er að blása af hlutum eða ef hann er hnoðaður saman með höndunum, þá fellur hann sundur þegar því er hætt. Þyngd að 0,35.
- Blautur snjór er snjór sem helst saman þegar hann er hnoðaður saman með höndunum og hægt er að mynda snjóbolta. Þyngd 0,35 að 0,5.
- Samanþjappaður snjór er snjór sem þjappað hefur verið saman í fasta heild, veitir viðnám við frekari samanþjöppun og helst saman eða brotnar í þykk stykki ef tekinn er upp. Þyngd 0,5 og yfir.
|
Tilkynnt bremsuskilyrði
Upplýsingar um bremsuskilyrði eru gefnar upp í mældu viðnámi (viðnámsstuðull er tveggja stafa tala en tugakommu er sleppt) þegar bremsuskilyrði eru mæld. Að auki verður tilkynnt um hvaða mælitæki er notað. Þegar bremsuskilyrði eru áætluð eru þau tilkynnt á venjulegu talmáli.
|
Í MOTNE-tilkynningum eru sérstök tákn notuð:
|
Calculated friction coefficient
|
Estimated breaking action
|
Code
| 0.40 and above | Good | 5 | 0.36 to 0.39 | Good to medium | 4 | 0.30 to 0.35 | Medium | 3 | 0.26 to 0.29 | Medium to poor | 2 | 0.25 and below | Poor | 1 |
|
AD 1.2.2.6 Lokun flugbrauta
|
Þegar tafir á snjóhreinsun gætu valdið neyðarástandi, t.d. ört lækkandi hitastig sem veldur því að vatn eða krap frýs í klakabunka þá er snjóhreinsunardeild heimilt að krefjast lokunar fyrir umferð á hlutum athafnasvæða.
|
AD 1.2.2.7 Dreifing upplýsinga um snjóalög
|
Upplýsingar um snjóalög á Akureyri, Egilsstöðum, Keflavík og Reykjavík er dreift með SNOWTAM-skeytum. Upplýsingar um aðra flugvelli eru veittar á viðkomandi flugvöllum eða í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík.
|
UPPLÝSINGAR UM ÁSTAND FLUGBRAUTA
|
Frá flugvöllunum á Akureyri, Egilsstöðum, Keflavík og í Reykjavík eru sendar upplýsingar um ástand flugbrauta sem átta stafa runa í lok METAR-skeyta.
|
1. Flokkarnir DRDRERCR eReRBRBR tákna: |
1. The group DRDRERCR eReRBRBR denotes: | Flugbrautarheiti | DRDR
| Runway Designator | Tegund þekju | ER
| Runway Deposits | Magn þekju | CR
| Extent of runway contamination | Dýpt þekju | eReR
| Depth of deposit | Bremsuskilyrði | BRBR
| Friction coefficient of braking action | Eftirfarandi leiðbeiningar stjórnast af samsetningu og notkun þessara átta stafa runu: | The following instructions govern the composition and use of this eight-figure group: | |
a. Flugbrautarheiti (DRDR) |
a. Runway designator (DRDR) | Flugbrautarheiti er auðkennt með tveimur tölustöfum eins og 01-19-31, tölugildið 88 merkir allar brautir. | Is expressed as two digits corresponding to runway designator, e.g. 01-19-31 etc., the figure 88 indicates "all runways". | Tölugildið 99 merkir að engar nýjar upplýsingar eru til (eldri upplýsingar endurteknar). | The digits 99 indicates that any or up-dated report is not available (the previous report is repeated.) | |
b. Tegund þekju (ER) |
b. Runway deposits (ER) | Hrein og þurr | 0 | Clear and dry | Rök | 1 | Damp | Blaut eða pollar | 2 | Wet or water patches | Hrím (dýpt venjulega minni en 1mm) | 3 | Rime or frost covered (depth normally less than 1 mm) | Þurr snjór | 4 | Dry snow | Blautur snjór | 5 | Wet snow | Krap | 6 | Slush | Ís | 7 | Ice | Þjappaður snjór | 8 | Compacted or rolled snow | Frosin hjólför eða hryggir | 9 | Frozen ruts or ridges | Tegund þekju ekki tilkynnt (vegna brautarhreinsunar) | // | Type of deposit not reported (e.g. due to runway clearance in progress). |
Ath. Ef um er að ræða fleiri en eina tegund af þekju á flugbrautinni er forgangsröð krap og ís
|
Note. If there are more than one deposit on the runway, priority is given to slush and ice (in the said order).
|
|
c. Magn á þekju (CR) |
c. Extent of runway contamination (CR) | Þetta er auðkennt með einum tölustaf eins og sýnt er hér á eftir: | This is expressed as a single digit in accordance with the following : | Minna en 10% af braut hulin | 1 | less than 10 per cent of runway contaminated (covered) | 11% til 25% af flugbraut hulin | 2 | 11 per cent to 25 per cent of runway contaminated (covered) | 26% til 50% af flugbraut hulin | 5 | 26 per cent to 50 per cent of runway contaminated (covered) | 51% til 100% af flugbraut hulin | 9 | 51 per cent to 100 per cent of runway contaminated (covered) | Ekki gefið upp (vegna brautarhreinsunar) | / | Not reported (e.g. due to runway clearance in progress). | |
d. Dýpt þekju (eReR) |
d. Depth of deposit (eReR) | Þetta er auðkennt með tveimur tölustöfum, samkvæmt eftirfarandi töflu: | This is denoted by two digits in accordance with the following scale: | minna en 0.1 mm | 00 | less than 0.1 mm | minna en 1 mm | 01 | less than 1 mm | minna en 2 mm | 02 | less than 2 mm | minna en 10 mm | 10 | less than 10 mm | minna en 15 mm | 15 | less than 15 mm | minna en 20 mm | 20 | less than 20 mm | minna en 90 mm | 90 | less than 90 mm | minna en 10 cm | 92 | less than 10 cm | minna en 15 cm | 93 | less than 15 cm | minna en 20 cm | 94 | less than 20 cm | minna en 25 cm | 95 | less than 25 cm | minna en 30 cm | 96 | less than 30 cm | minna en 35 cm | 97 | less than 35 cm | minna en 40 cm | 98 | less than 40 cm | Þetta þýðir að flugbraut eða flugbrautir eru ónothæfar vegna snjóa, kraps, íss, skafla eða vinnu við brautarhreinsun. | 99 | Meaning runway or runways non-operational due to snow, slush, ice, large drifts or runway clearance, but depth not reported | Dýpt á þekju ekki mælanleg. | // | Depth of deposit operationally not significant or not measurable |
Ath. Þegar dýpt er mæld á nokkrum stöðum á flugbraut er gefið upp meðaltal eða ef þurfa þykir þá mesta dýpt
|
Note. When depth is measured at a number of points along a runway, the average value is stated or, if operationally significant, the highest value.
|
|
e. Bremsuskilyrði (BRBR) |
e. Friction coefficient or braking action (BRBR) | Er gefið upp með 2 tölustöfum í samræmi við viðnámstuðul, ef ekki þá í samræmi við eftirfarandi: | This is denoted by two digits corresponding to the friction coefficient or, if not available, the estimated braking action, in accordance with the following: | góð | 95 | good | sæmileg til góð | 94 | medium/good | sæmileg | 93 | medium | sæmileg til léleg | 92 | medium/poor | léleg | 91 | poor | óáreiðanleg | 99 | unreliable | bremsuskilyrði ekki uppgefin - braut ekki nothæf | // | braking conditions not reported, runway not operational. |
|
Ath. 1 - Þar sem bremsuskilyrði eru tekin á nokkrum stöðum á flugbrautinni skal gefa meðaltal eða ef talið er æskilegt þá lægsta gildi.
|
Note 1 - Where braking action is assessed at a number of points along the runway, the mean value used or, if operationally significant, the lowest value.
|
Ath. 2 - 99 er gefið upp ef mælitækið gefur ekki upp áreiðanlega tölu vegna krapa.
|
Note 2 - Code 99 is reported if the measuring equipment does not give reliable values due to wet or loose snow or slush.
|
Ath. 3 - "//" er gefið upp ef ekki er unnt að gefa upp bremsuskilyrði.
|
Note 3 - "//" is reported if the braking action cannot be reported.
|
|
Dæmi 1: 99421594 þýðir, þurr snjór þekur 11 til 25% af braut, dýpt 15 mm, bremsuskilyrði sæmileg til góð.
|
Dæmi 2: 14//99// = Flugbraut 14 lokuð - hreinsun í gangi.
|
Dæmi 3: 14//////: Flugbraut 14 óhreinsuð, engar aðrar upplýsingar fyrir hendi. Ef allar flugbrautir eru þannig þá skal nota 88////// og t.d. flugvöllur lokaður.
|
Dæmi 4: 14CLRD//: Flugbraut 14 opin. Ef um er að ræða allar flugbrautir þá skal nota 88CLRD// eingöngu.
|