ENR 1.2 SJÓNFLUGSREGLUR (VFR)

 

ENR 1.2.1 Almennt

(Rg. 770/2010, ICAO Viðauki 2)

Allt sjónflug, nema sérlegt sjónflug, skal háð þeim skilyrðum um skyggni og fjarlægð frá skýjum sem jöfn eru eða strangari en um getur í eftirfarandi töflu:


Hæðarbil /

Altitude band


Flokkur loftrýmis /

Airspace class


Flugskyggni /

Flight visibility


Fjarlægð frá skýjum /

Distance from cloud


Í og ofar FL 100 /

At and above FL 100
A** B C D E F G 8 km

1.500 m lárétt
1.000 fet lóðrétt /

1 500 m horizontally
1 000 ft vertically


Undir FL 100 og ofar en 3.000 fet AMSL, eða ofar en 1.000 fet yfir
landi, hvort sem hærra er /

Below FL100 and above 3 000 ft AMSL, or above 1 000 ft above terrain, whichever is the higher
A** B C D E F G 5 km

1.500 m lárétt
1.000 fet lóðrétt /

1 500 m horizontally
1 000 ft vertically


Í og undir 3.000 fetum AMSL, eða
1.000 fetum yfir landi, hvort sem hærra er /

At and below 3 000 ft AMSL, or
1 000 ft above terrain, whichever is the higher
A** B C D E 5 km

1.500 m lárétt
1.000 fet lóðrétt /

1 500 m horizontally
1 000 ft vertically
F G 5 km* Laus við ský og sér til jarðar /
Clear of cloud and with the surface in sight
* Loftförum í A- og B-flokki er heimilt að degi til að fljúga við skyggni allt niður í 3 km ef flogið er á 140 kt IAS eða minna. Þyrlum er heimilt að fljúga við 800 m flugskyggni í loftrými í flokki G að degi til, ef flogið er svo hægt, að nægur tími gefist til að fylgjast með annarri umferð eða hindrunum til að afstýra árekstri.
** VMC lágmarkið er sett í loftrými A til leiðbeiningar fyrir flugmenn og á ekki að gefa til kynna að VFR-flug sé samþykkt í loftrými A.

ENR 1.2.2 Sérlegt sjónflug

Loftfar á sjónflugi má ekki lenda á né hefja flug frá stjórnuðum flugvelli, sem hefur flugstjórnarsvið, né heldur koma inn í umferðarhring hans án heimildar fyrir sérlegt sjónflug frá viðkomandi flugumferðarþjónustudeild þegar:
  1. skýjahæð er lægri en 1 500 fet eða
  2. vallarskyggni er minna en 5 km

ENR 1.2.2.1 Lágmarkshæðir

Heimild fyrir sérlegt sjónflug er ekki undanþága frá lágmarkshæðum.

ENR 1.2.3 Sjónflug að nóttu (nætursjónflug)

Sjónflugi að nóttu skal hagað samkvæmt skilyrðum í þessum kafla.

Skilgreining á því hvað telst nótt er sem hér segir: Tíminn á milli loka ljósaskipta að kvöldi og að upphafi ljósaskipta að morgni. Ljósaskipti enda að kvöldi þegar miðpunktur sólar er 6° fyrir neðan sjóndeildarhring og
hefjast að morgni þegar miðpunktur sólar er 6° fyrir neðan sjóndeildarhring.
Sjá töflur um sólarupprás/sólsetur í GEN 2.7.

ENR 1.2.3.1 Undanþágur

Eftirfarandi flug eru undanþegin kröfum um veðurskilyrði:
  1. björgunar- og leitarflug;
  2. æfingaflug fyrir björgunar- og leitarflug;
  3. landhelgisgæsluflug;
  4. sjúkra- og neyðarflug.

ENR 1.2.3.2 Almennt

ENR 1.2.3.2.1 Flugáætlun

Leggja skal inn flugáætlun fyrir allt sjónflug að nóttu í samræmi við ENR 1.10.

ENR 1.2.3.2.2 Takmarkanir

Varðstjóri í flugstjórnarmiðstöð getur bannað sjónflug að nóttu á ákveðnum svæðum án fyrirvara.

ENR 1.2.3.3 Kröfur um réttindi flugmanns, búnað loftfars og veður

ENR 1.2.3.3.1 Nágrennisflug

Nágrennisflug er flug innan 15 NM frá upplýstum flugvelli enda sé ætíð óhindruð sjónlína frá loftfari til flugvallar.
  1. Lágmarksréttindi: einkaflugmannsskírteini eða flugmannsskírteini fyrir léttar flugvélar  með áritun fyrir sjónflug að nóttu.
  2. Búnaður loftfars: í samræmi við reglugerðir um almannaflug.
  3. Veður: skýjahæð að lágmarki 2 000 fet yfir hæstu hindrun skv. mati Veðurstofu Íslands.

ENR 1.2.3.3.2 Takmarkað landflug

Takmarkað landflug er flug sem er flogið sem næst upplýstum og auðþekkjanlegum stöðum (t.d. þorpum eða bæjum) innan 30 NM frá hvor öðrum.
  1. Lágmarksréttindi: einkaflugmannsskírteini eða flugmannsskírteini fyrir léttar flugvélar með áritun fyrir sjónflug að nóttu.
  2. Búnaður loftfars: í samræmi við reglugerðir um almannaflug.
  3. Veður: skýjahæð að lágmarki 2 000 fet yfir hæstu hindrun á áætlaðri flugleið að mati Veðurstofu Íslands.

ENR 1.2.3.3.3 Landflug

  1. Lágmarks réttindi: blindflugsáritun.
  2. Búnaður loftfars: í samræmi við reglugerðir um almannaflug
  3. Veður: skýjahæð að lágmarki 2 000 fet yfir hæstu hindrun á áætlaðri flugleið að mati Veðurstofu Íslands.

ENR 1.2.3.3.4 Eftirfarandi gildir um allar tegundir nætursjónflugs

  1. Flugskyggni skal vera að minnsta kosti 8 km í sjónflugi að nóttu.
  2. VFR-lágmörk fyrir láréttar og lóðréttar fjarlægðir loftfars frá skýjum, sem gilda innan flugstjórnarrýmis, skulu að næturlagi jafnframt gilda utan þess.
  3. Loftfar telst í nánd flugvallar þegar það er í, er að koma inn í, eða er að fara út úr umferðarhring hans.
  4. Sjónflug að nóttu innan íslensks flugstjórnarrýmis er aðeins heimilað loftförum sem hafa rautt blikkandi varúðarljós (anti-collision light) og/eða hvít leifturljós við vængenda og stél eða komið fyrir á annan viðurkenndan hátt, samkvæmt reglugerð um flugreglur.

ENR 1.2.4 VFR-flug skal ekki flogið:

  1. í eða fyrir ofan fluglag 200;
  2. nálægt hljóðhraða eða hraðar.

ENR 1.2.5 Lágmarkshæð

Ekki má fljúga sjónflug nema nauðsynlegt sé við flugtök og lendingar eða með sérstöku leyfi Samgöngustofu:
  1. yfir þéttbýlum hlutum borga, bæja eða þorpa eða yfir útisamkomum í minni hæð en 1 000 fetum (300 m) yfir hæstu hindrun innan 600 m fjarlægðar frá loftfarinu,
  2. annars staðar en getið er í 1. lið þessarar greinar, í minni hæð en 500 fetum (150 m) yfir láði eða legi.

ENR 1.2.6 Fluglög

Loftfar í láréttu VFR-flugi, ofar 3 000 fetum yfir láði eða legi, skal fljúga í lagi miðað við segulferil samanber töflu um farflugshæðir í ENR 1.7.5, nema þegar annað er tekið fram í flugheimild.

Ath. : Lag er almennt hugtak sem varðar lóðrétta stöðu loftfars á flugi og á ýmist við hæð, flughæð eða fluglag. Sjá ENR 1.7 Starfshættir varðandi stillingu hæðarmæla.

ENR 1.2.7 Nágrennisflug

.Sjónflug skal fylgja fyrirmælum í reglugerð 770/2010 grein 3.6, þegar:
  1. flogið er í C og D flokkum loftrýmis;
  2. það er hluti af flugvallarumferð flugvalla með flugturni; eða ;
  3. um sérlegt sjónflug er að ræða.

ENR 1.2.8 Breytt frá sjónflugi yfir í blindflug

Ef loftfar í sjónflugi óskar að breyta um og fljúga samkvæmt blindflugsreglum skal það:
  1. láta vita um þær nauðsynlegu breytingar sem gera þarf á gildandi flugáætlun ef flugáætlun hefur verið lögð fram; eða 
  2. þegar svo er krafist skv. ENR 1.10.1 , láta hlutaðeigandi flugumferðarþjónustudeild í té flugáætlun og fá flugheimild áður en blindflug er hafið í flugstjórnarrými.