|
|||||||||||||||||||
Akstur flugvéla að og frá flugbrautum er mögulega einn hættumesti hluti flugs vegna nálægðar við aðrar flugvélar, ökutæki og fólk.
Á síðustu árum hafa atvik sem fela í sér brautarátroðning, þ.e. að flugvél, ökutæki eða fólk fer inn fyrir öryggissvæði flugbrautar án heimildar, aukist umtalsvert. |
|||||||||||||||||||
Að gefnu tilefni vill Samgöngustofa koma á framfæri eftirfarandi upplýsingum og tilmælum til flugmanna, flugumferðarstjóra og ökumanna á flugvöllum.
|
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Flugmenn, flugumferðarstjórar og ökumenn tækja á flugvöllum geta allir lent í brautarátroðningsatviki. Þegar brautarátroðningsatvik á Íslandi eru rýnd kemur í ljós að meirihluti þeirra verða vegna samskiptaörðugleika milli flugmanna og flugumferðarstjóra eða vegna mistaka í akstri flugvéla.
|
|||||||||||||||||||
Sem dæmi um orsakaþætti atvika má nefna að ekki er farið eftir fyrirmælum frá flugumferðarstjórn, heimildir eru ekki lesnar rétt til baka og að flugmenn misskilji fyrirmæli.
Einnig eru mörg dæmi um að flugmenn virði ekki stöðvunarlínur, skilti og ljósmerkingar við flugbrautir þrátt fyrir skýr fyrirmæli um að bíða við braut og að flugmenn aki ranga leið. |
|||||||||||||||||||
Mörg þessara atvika hefði verið hægt að koma í veg fyrir með árvekni flugmanna, ökumanna og flugumferðarstjóra.
|
|||||||||||||||||||
Mikilvægt er að hafa í huga að
aldrei
má aka yfir stöðvunarlínur við flugbrautir án þess að hafa fengið heimild til þess frá flugumferðarstjórn. Hvort sem það er til flugtaks eða til að aka yfir flugbraut.
Ef minnsti vafi leikur á hvort heimild sé til staðar skal alltaf leita staðfestingar hjá flugumferðarstjórn. |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Þessi ráð eiga jafnt við á stjórnuðum og óstjórnuðum flugvöllum.
Þar sem ekki er flugumferðarþjónusta er mikilvægt að tilkynna fyrirætlanir sínar á tíðni flugvallarins eða fjarskiptatíðni sjónflugs 118.100/118.400 Mhz eftir því sem við á og fylgjast vel með annarri umferð við völlinn fyrir lendingu eða flugtak. |
|||||||||||||||||||
Ef óskað er frekari upplýsinga, eða ef koma þarf athugasemdum á framfæri, vinsamlegast hafið samband við:
|
|||||||||||||||||||
Samgöngustofa
Ármúli 2, 108 Reykjavík |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Netfang / Email:
fly@icetra.is
Sími / Phone: +354 480 6000 |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Upplýsingabréf fellt út gildi:
|
|||||||||||||||||||
Engin
|
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Efni eftirfarandi NOTAM skeyta birt í þessu upplýsingabréfi:
|
|||||||||||||||||||
Ekkert
|
|||||||||||||||||||
ENDIR / END |