GEN 3.5 VEÐURÞJÓNUSTA

 

GEN 3.5.1 Ábyrgðaraðili þjónustunnar

Samgöngustofa er veðurfræðilegt stjórnvald á Íslandi. Veðurstofa Íslands fer með hlutverk aðalveðurstofu svæðisins og sinnir hún ásamt Isavia flugtengdri veðurþjónustu innan íslenska flugstjórnarsvæðisins þ.m.t. á flugvöllum. Þjónustan er veitt samkvæmt þjónustusamningi Innviðaráðuneytis við Isavia um flugleiðsögu og auk þess skv. samstarfssamningi milli Isavia og Veðurstofu Íslands.
  Veðurstofa Íslands 
Bústaðavegi 9
150 Reykjavík, Ísland
Sími:  + 354 522 6000
Símbréf:  N/A
AFS:   BIRKYMYX
Netfang:  office@vedur.is
Veffang:  https://www.vedur.is/vedur/flugvedur/
  Isavia ANS
Nauthólsvegur 60-66
102 Reykjavík, Ísland
Sími:  + 354 424 4000
Símbréf:  N/A 
AFS:   BIRKZQZQ
Netfang:  isavia@isavia.is
Veffang:  https://www.isavia.is/fyrirtaekid/c-forflugsupplysingar/flugvedur/flugvedur

GEN 3.5.1.1 Viðeigandi skjöl

Veðurþjónusta vegna flugleiðsögu er í samræmi við alþjóðareglur sem tilgreindar eru í eftirfarandi ritum:
 
Reglugerð nr. 720/2019, sem er innleiðing á reglugerð (EU) 2017/373. Reglugerðin snýr að sameiginlegum kröfum fyrir veitendur þjónustu á sviði rekstrarstjórnunar flugumferðar/ flugleiðsöguþjónustu og á sviði starfsemi neta fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar og eftirlit með þeim.
 
ICAO Annex 3 - Meteorological Service for International Air Navigation.

ICAO DOC 014 – SIGMET and AIRMET Guide (EUR)

ICAO Doc 7030 - Regional Supplementary Procedures. ICAO Doc 8896 - Manual of Aeronautical MET Practices.

ICAO Doc 9328 - Manual of Runway Visual Range Observing and Reporting Practices.

ICAO Doc 9377 - Manual on Co-ordination between Air Traffic Services and Aeronautical Meteorological Services.

ICAO Doc 9634 eANP NAT region.

ICAO DOC 9691 – Manual on Volcanic Ash, Radioactive Material and Toxic Chemicals

ICAO DOC 9766 – Handbook on International Airways Volcano Watch (IAVW)

ICAO DOC 10100 – Space Weather

WMO Publication Nr. 9 Weather Reports. WMO Technical Regulations Nr 49.
Frávik frá ICAO viðauka 3 eru tilgreind í GEN 1.7.

GEN 3.5.2 Ábyrgðarsvæði

Veðurstofa Íslands er hin opinbera veðurstofa landsins og útnefnd sem aðalveðurstofa gagnvart flugleiðsögu. Hún sér um vöktun veðurs og útgáfu viðvarana (SIGMET) fyrir Reykjavík FIR/CTA, ásamt söfnun og dreifingu veðurskeyta.
Isavia ANS sér um gerð og dreifingu METARa á íslenskum flugvöllum nema í Reykjavík og Keflavík sem Veðurstofan hefur umsjón með. Isavia ANS sér einnig um ýmsa vöktun og dreifingu upplýsinga um veðurfyrirbæri sem ógnað geta öryggi flugs.

GEN 3.5.3 Veðurathuganir og veðurskeyti

GEN 3.5.3.1 Athuganir á veðri við yfirborð

Veðurathuganir á flugvöllum eru gerðar ýmist handvirkt eða með aðstoð sjálfvirkra mælitækja:
  1. Reglubundnar veðurathuganir METAR
    Á flugvöllunum í Keflavík, Reykjavík, Akureyri og Egilsstöðum eru gerðar reglulegar athuganir allan sólarhringinn, á hálftíma fresti í Keflavík en á klukkustunda fresti á öðrum flugvöllum.
    Athugunum frá Keflavík er útvarpað á VOLMET frá Shannon á Írlandi, (sjá VOLMET töflu).
    Staðbundin reglubundin veðurathugun (local routine report) er gefin út fyrir BIKF á hálftíma fresti allan sólarhringinn og fyrir BIRK á klukkustundarfresti á opnunartíma flugvallar, t.d. með birtingu í flugvallarútvarpi (ATIS).
  1. Sérstakar veðurathuganir
    SPECI eru gerðar þegar vart verður marktækra veðrabreytinga til hins verra eða betra milli reglubundinna athugana.
    Ef veður fer marktækt versnandi er strax sent út SPECI-skeyti en ef veður fer batnandi er skeyti ekki sent fyrr en batinn hefur staðið í 10 mínútur. Keflavíkurflugvöllur (BIKF) gefur ekki út SPECI athuganir. 
    Þessum skeytum er dreift á sama hátt og METAR skeytunum. SPECI veðurskeyti má einnig gefa út í sérstökum tilfellum að beiðni ATS og flugrekenda.
  1. METAR og SPECI skeyti fyrir flugvellina á Bíldudal, Ísafirði, Gjögri, Grímsey, Húsavík, Hornafirði, Þórshöfn, Vopnafirði og Vestmannaeyjum eru send út á klukkustunda fresti á þjónustutíma flugvallanna, (sjá AD 2.3.7).
    METAR og SPECI athugunum er dreift á AMHS til ATS, flugfélaga og OPMET gagnabanka. Einnig eru upplýsingarnar birtar á heimasíðu Veðurstofunnar.

GEN 3.5.3.2 Vindur við yfirborð

Á öllum íslenskum flugvöllum í töflunum hér á eftir er mæld vindátt og vindhraði með skálavindhraðamælum eða úthljóðsbylgju- vindnemum. Vindmælarnir eru í 7-10 m hæð frá jörðu. Á sérhverjum flugvelli eru mælarnir staðsettir þannig að þeir gefi raunsanna mynd af aðstæðum á flugvellinum, sjá flugvallakort (AD 2.24). Lesið er af mælunum í viðkomandi flugumferðarþjónustudeild. Vindhraði er tilgreindur í hnútum.

GEN 3.5.3.3 Skyggni

Skyggni í veðurathugunum er ríkjandi skyggni. Skyggni er metið út frá þekktum vegalengdum í umhverfinu. Þegar minnsta skyggni er frábrugðið ríkjandi skyggni, og
  1. minna en 1500 m eða
  2. minna en 50% af ríkjandi skyggni og undir 5000 m;
skal einnig gefa minnsta skyggni og átt þess miðað við höfuðáttirnar átta. Ef minnsta skyggni er mjög frábrugðið eftir áttum skal sú átt tilgreind sem hefur mesta þýðingu fyrir flugið. Þegar breytingar á skyggni eru örar og ekki hægt að ákvarða ríkandi skyggni, skal aðeins tilgreina minnsta skyggni án tilvísunar til áttar.

GEN 3.5.3.4 Flugbrautarskyggni (RVR)

Á Akureyri, Egilsstöðum, Keflavík og í Reykjavík eru sérstakir flugbrautarskyggnismælar (sjá flugvallakort) sem mæla RVR (Runway Visual Range) sem er tilgreint í METAR þegar skyggni eða RVR mælist undir 1500 metrum.
Lágmarksgildi mælanna er 10 metrar.
RVR er tilgreint í 25 metra þrepum upp að 400 metrum, 50 m þrepum milli 400 og 800 metra og 100 metra þrepum upp að 1500 metrum.

GEN 3.5.3.5 Skýjahæð

Skýjahæð er metin á öllum flugvöllum en með aðstoð skýjahæðamæla á flugvöllunum á Akureyri, Egilsstöðum, Keflavík, Reykjavík, Ísafirði, Hornafirði, Húsavík og Vestmannaeyjum.
Skýjategund er ekki tilgreind nema um háreist skúraský (TCU eða CB) sé að ræða

GEN 3.5.3.6 Hiti / daggarmark

Lofthiti og daggarmark eru mæld og tilgreind í METAR frá öllum flugvöllum.

GEN 3.5.3.7 QNH

Loftþrýstingur er gefinn upp í einingunni hPa sem jafngildir millibörum.

GEN 3.5.3.8 Vindhvörf

Vindhvörf í lægri hæðum eru ekki mæld með tækjum á íslenskum flugvöllum. Upplýsingum um vindhvörf frá flugvélum við lendingu og flugtak, eða upplýsingum fengnum eftir öðrum leiðum, er hægt að koma á framfæri í METAR eða MET- Reports (í gegnum ATIS) ef um langvarandi vindhvörf er að ræða. Einnig er leitast við að veita upplýsingar munnlega um vindhvörf við flugvelli hvort sem um er að ræða skammvinn eða langvinn fyrirbæri.

GEN 3.5.3.9 Veðurmælingar í háloftum

Reglubundin veðurmæling í háloftum á Keflavíkurflugvelli er gerð tvisvar á sólarhring, kl. 11:00 og 23:00. Mælingin felur í sér sleppingu loftbelgs með léttum mælitækjum.
Starfsmenn Veðurstofu Íslands á Keflavíkurflugvelli sjá um framkvæmd. Fyrir framkvæmd skal heimild til sleppingar loftbelgs fengin frá flugstjórnarþjónustu Keflavíkurflugvallar. 
Reglubundin veðurmæling í háloftum á Egilsstaðaflugvelli er gerð einu sinni á sólarhring, kl. 11:00 frá 1. september til 10. maí. Mælingin felur í sér sleppingu loftbelgs með léttum mælitækjum. Flugvallarstarfsmenn Isavia á Egilsstaðaflugvelli sjá um framkvæmd, Fyrir framkvæmd skal heimild til sleppingar loftbelgs fengin frá flugupplýsingaþjónustu vallarins (AFIS).
Óreglubundnar mælingar: Við ákveðnar aðstæður, s.s. eldgos, er veðurmælingum í háloftum fjölgað á Keflavíkurflugvelli og Egilsstaðaflugvelli í fjórar á sólarhring. Heimildum til sleppinga skal aflað á sama hátt og þegar um reglubundnar veðurmælingar í háloftum er um að ræða. Gera skal grein fyrir óreglubundnum veðurmælingum í háloftum í NOTAM.
Færanleg háloftastöð er notuð til veðurmælinga í háloftum á meðan á eldgosi stendur og er staðsett nálægt þeirri eldstöð sem gýs hverju sinni. Einnig er slík stöð notuð til veðurfræðirannsókna og við þjálfun starfsmanna VÍ. Sérfræðingar Veðurstofu Íslands sjá um framkvæmd slíkra mælinga. Sé sleppingin í nágrenni flugvallar skal heimild einnig fengin frá viðkomandi flugstjórnarþjónustu/ flugupplýsingaþjónustu. Gera skal grein fyrir sleppingum úr færanlegri háloftastöð í NOTAM.
Niðurstöður veðurmælinga í háloftum frá BIKF og BIEG eru birtar í hitariti á vef Veðurstofu Íslands;

https://www.vedur.is/vedur/flugvedur/haloftaathuganir/
 

GEN 3.5.3.10 Veðurstöðvar

Sjá töflur í köflum GEN 3.5.3.11 (SYNOP) & GEN 3.5.3.12.(METAR)

GEN 3.5.3.11 Skrá um veðurathugunarstöðvar fyrir millilandaflugleiðsögu

 
INDEX NO

SYNOP

STATION
COORDINATES HEIGHTS REMARKS
1 2 3 4 5
030 Reykjavík I. 6408N 02154W 52 m  
005 Bolungarvík 6610N 02315W 26 m  
063 Akureyri 6541N 01806W 23 m Observation taken in City
089 Egilsstaðaflugvöllur II. 6516N 01424W 23 m  
097 Dalatangi 6516N 01335W 9 m  
082 Höfn 6416N 01512W 8 m  
064 Kirkjubæjarklaustur -
Stjórnarsandur I.
6348N 01801W 22 m  
048 Vestmannaeyjar 6324N 02017W 118 m  
018 Keflavik Aerodrome III. 6358N 02235W 47 m  
  1. Á klst. fresti / Hourly reports
  2. Synop skeyti er búið til úr sjálfvirkri athugun og METAR skeyti /
    Synop report is made from an automatic weather station and a METAR
  3. Á hálftíma fresti. Allar aðrar stöðvar athuga á 3ja klst. fresti (t.d. 00. 03. 06. o.s.frv.) / Half hourly reports. All other stations report at synoptic hours (i.e. 00. 03. 06. etc.)
 

GEN 3.5.3.12 Veðurstöðvar og veðurmyndavélar

Veðurathuganir og veðurvefmyndavélar er á vef Veðurstofunnar ( vedur.is) og hjá Vegagerðinni ( vegagerdin.is).

GEN 3.5.3.13 Veðurathuganir og veðurskeyti

Name of station / 
ICAO Location Indicator
Type and frequency of Observation Types of MET reports Observation System and Site(s) Hours of Operation (UTC) Climatological information
1 2 3 4 5 6
BIKF -
KEFLAVÍK / Keflavik
Half Hourly METAR Ultrasonic Wind Sensor Cup Anemometer
RWY RVR EQPT
Ceilometer
H24

Íslenska / Icelandic

vedur.is/vedur/flugvedur/vedurfar/

Enska / English en.vedur.is/weather/aviation/climate/

 
BIRK -
REYKJAVÍK / Reykjavik
Hourly METAR SPECI Cup Anemometer RWY RVR EQPT
Ceilometer
H24
BIAR - 
AKUREYRI / Akureyri
Hourly METAR SPECI Cup Anemometer RWY RVR EQPT
Ceilometer
H24
BIEG -
EGILSSTAÐIR / Egilsstadir
Hourly METAR SPECI Cup Anemometer RWY RVR EQPT
Ceilometer
H24
BIBD -
BÍLDUDALUR / Bildudalur
Hourly during ATS Operations Hours METAR SPECI Cup Anemometer See AD 2.3.7
BIIS -
ÍSAFJÖRÐUR / Isafjordur
Hourly during ATS Operations Hours METAR SPECI Ultrasonic Wind Sensor Ceilometer See AD 2.3.7
BIGJ -
GJÖGUR / Gjogur
Hourly during ATS Operations Hours METAR SPECI Cup Anemometer See AD 2.3.7
BIGR -
GRÍMSEY / Grimsey
Hourly during ATS Operations Hours METAR SPECI Cup Anemometer See AD 2.3.7
BIHU -
HÚSAVÍK / Husavik
Hourly during ATS Operations Hours METAR SPECI Cup Anemometer Ceilometer See AD 2.3.7
BITN -
ÞÓRSHÖFN / Thorshofn
Hourly during ATS Operations Hours METAR SPECI Cup Anemometer See AD 2.3.7
BIVO -
VOPNAFJÖRÐUR / Vopnafjordur
Hourly during ATS Operations Hours METAR SPECI Cup Anemometer See AD 2.3.7
BIHN -
HORNAFJÖRÐUR / Hornafjordur
Hourly during ATS Operations Hours METAR SPECI Cup Anemometer Ceilometer See AD 2.3.7
BIVM -
VESTMANNAEYJAR / Vestmannaeyjar
Hourly during ATS Operations Hours METAR SPECI Ultrasonic Wind Sensor Ceilometer See AD 2.3.7

GEN 3.5.4 Veðurþjónusta

Veðurþjónusta vegna flugs er veitt allan sólarhringinn á Veðurstofu Íslands. Hægt er að nálgast hana með ýmsu móti, eins og beinu sambandi við veðurfræðing eða í gegum netið.
  1. Bein viðtöl við veðurfræðinga fást aðeins á Veðurstofu Íslands, Bústaðavegi 9.
    Fyrir notendur á öðrum flugvöllum fást bein viðtöl aðeins gegnum síma.
    Upplýsingar fást með því að hringja í beint símanúmer
    + 354 522 6310.
  1. Á heimasíðu Veðurstofunnar er hægt að nálgast veðurupplýsingar fyrir flug.
  1. Upplýsingar fyrir millilandaflug samanstanda af WAFS spákortum fyrir marktækt veður (SWC), háloftavinda- og hitakortum og nýjustu fáanlegum flugvallaspám bæði fyrir áfangastað og varaflugvelli þeirra auk gildandi viðvarana um hættulegt veður, SIGMET, veðurtunglamyndir og fleira.
  1. Flugveðurskilyrði yfir Íslandi eru gefin út þrisvar á sólarhring á ensku og eru ætluð fyrir innanlandsflug, bæði VFR og IFR upp í FL180.  

    Gildistími þessara upplýsinga er:
    Kl. 07:00-12:00, útgefið fyrir kl. 06:30
    Kl. 12:00-17:00, útgefið fyrir kl. 11:30 og
    Kl. 17:00-23:00, útgefið fyrir kl. 16:30.

    Flugveðurskilyrði yfir Íslandi innihalda veðurlýsingu og spár fyrir helstu veðurþætti sem viðkoma flugi, eins og vinda- og hitaspár fyrir fluglög FL050, FL100 og FL180, auk vindaspár nærri yfirborði. Spár eru einnig gerðar fyrir veðurfyrirbæri, skyggni og skýjafar frostmarkshæð, ísingu og ókyrrð auk annarra upplýsinga sem taldar eru mikilvægar.

    Svæðisspá fyrir flug í lægri flughæðum (Low Level SIGWX-kort) er gefin út (að lágmarki) þrisvar sinnum á sólarhring, með gildistíma:

    Kl. 06:00, útgefið fyrir kl. 02:00
    Kl. 12:00, útgefið fyrir kl. 09:30 og
    Kl. 18:00, útgefið fyrir kl. 15:30

    Séu markverðar breytingar á svæðisspá fyrirséðar skal gefa út breytta spá.
Samgöngustofa metur það svo að þéttleiki flugumferðar sem starfrækt er undir FL100 eða upp að FL150 á fjallasvæðum eða hærra, sé ekki það mikill að þörf sé á AIRMET.
  1. Veðurathuganir frá flugvöllum eru skráðar eins og tilgreint er í GEN 3.5.3.11.

GEN 3.5.4.1 Veðurspár (TAF)

 
Name of Station Type of Services Hours of Service Time of Validity Time of Issue
1 2 3 4 5
Keflavík – BIKF
Reykjavík – BIRK
Egilsstaðir – BIEG
Akureyri – BIAR
TAF
TAF AMD
TAF COR
H24 00 - 24
03 - 03
06 - 06
09 - 09
12 - 12
15 - 15
18 - 18
21 - 21
23
02
05
08
11
14
17
20
Ísafjörður – BIIS
Bíldudalur – BIBD
Húsavík – BIHU
Hornafjörður – BIHN
Gjögur – BIGJ Grímsey – BIGR Þórshöfn – BITN
Vestmannaeyjar – BIVM
Vopnafjörður - BIVO
TAF
TAF AMD
TAF COR


During ATS Hours of Service

See AD 2.3.7
During ATS Hours of Service See AD 2.3.7 08 - XX
11 - XX
14 - XX
17 - XX

**


*

07:30
10:30
13:30
16:30
* Time of Issue: Initial TAF issued after the first METAR from the aerodrome, then according to these times.
Note that TAF is only issued for ATS Hours of Service. 
** Time of Validity: Minimum 2 hours up to 9 hours, depending on ATS Hours of Service.

GEN 3.5.5 Beiðni frá flugrekendum

Beiðni frá flugrekendum um veðurupplýsingar fyrir flug á föstum áætlunartímum og leiðum er afgreidd samkvæmt fyrirfram ákveðnu samkomulagi milli flugrekstraraðila og Veðurstofunnar. Beiðni frá flugrekendum um veðurupplýsingar fyrir flug utan fastra áætlunartíma eða flug samkvæmt breyttri áætlun er yfirleitt samkomulagsatriði, en best er að hún liggi fyrir ekki seinna en 2 klst. fyrir áætlaðan brottfarartíma.
Beiðnin skal innihalda allar nauðsynlegar upplýsingar um fyrirhugað flug (sjá ICAO Annex 3, 2. kafli, grein 2.3.4)
Þegar veðurupplýsingar vegna flugs hafa verið sóttar alllöngu fyrir brottför (ETD) ætti að hafa samband við Veðurstofuna rétt fyrir brottför til að kanna hugsanlegar breytingar.

GEN 3.5.6 Upplýsingar frá loftförum

Samkvæmt Annex 3, kafla 5, skal tilkynna Veðurstofunni um allt veður sem skiptir máli (significant) sem loftfar hefur orðið fyrir á flugi og í aðflugi eða klifri til/frá flugvöllum innan Reykjavíkur FIR/CTA.
Engar formlegar staðarákvarðanir hafa verið gefnar út þar sem tilkynna skal veður. Tilkynningar skulu framkvæmdar í samræmi við Regional Supplementary Procedures, Doc 7030.
Hægt er að skrá slíkar tilkynningar á vef Veðurstofunnar undir PIREP:

https://www.vedur.is/vedur/flugvedur/pirep

GEN 3.5.7 VOLMET-þjónusta

 
Name of Station Call Sign 
ID (EM)
Frequency Broadcast Period Hours of Service Aerodromes Included Contents / Format / Remarks
1 2 3 4 5 6 7
KEFLAVIK SHANNON VOLMET 3413 KHZ HN
(during night)

5505 KHZ
H24

8957 KHZ
H24

13264 KHZ
HJ
(during day)


H+00 to H+25

and
 

H+30 to H+55
H24 KEFLAVIK Nil
 
Upplýsingar um veður á Keflavíkurflugvelli er hægt að fá í gegnum Shannon VOLMET á Írlandi.

GEN 3.5.8 SIGMET-þjónusta

GEN 3.5.8.1 Almennt

Veðurstofa Íslands vaktar veður og veðurfyrirbæri sem ógnað gætu flugöryggi, og einnig sér hún um gefa út og dreifa viðvörunum (SIGMET) þessu viðkomandi.
Vöktunarsvæði Veðurstofunnar er Reykjavík FIR/CTA.  

GEN 3.5.8.2 Svæðaveðurþjónusta

Svæðaveðurþjónusta sem veitt er af Veðurstofu Íslands byggist meðal annars á upplýsingaþjónustu gagnvart ATS- deildum innan Reykjavík FIR/CTA og útgáfu SIGMETa.
SIGMET-skeyti er gefið út hvenær sem eitthvað af eftirfarandi fyrirbærum koma fyrir eða búist er við innan Reykjavík FIR/CTA:
 


SIGMET Tegund /
SIGMET Type


Tilgreind fyrirbæri á flugleið /
Specified en-route phenomena


Orð sem táknar fyrirbærið í SIGMETi /
Term to be used for phenomena  in SIGMET


Bókstafur fyrir fyrirbæri í raðnúmeri /
First Letter in sequence number for phenomena


WC


Tropical cyclone


TC (+ name)


C


Fyrir sendingu WC prófunarskeyta /
For WC exchange test purposes


TC (+ name)


X


WV


Volcanic ash


VA


A


Fyrir sendingu WV prófunarskeyta /
For WV exchange test purposes


VA


Y


WS


Þrumuveður /
Thunderstorm    


TS (GR)


T


Mikil kvika /
Severe turbulence    


SEV TURB


U


Mikil ísing /
Severe icing    


SEV ICE


I


Frostrigning  /
Freezing rain


FZRA


F


Miklar fjallabylgjur /
Severe mountain waves    


SEV MTW


M


Víðáttumikið moldrok /
Heavy dust storm    


HVY DS


D


Víðáttumikill sandbylur /
Heavy sandstorm    


HVY SS


S


Geislavirkt ský /
Radioactive cloud


RDOACT CLD 


R


Fyrir sendingu WS prófunarskeyta /
For WS exchange test purposes


 


Z


 
Þriggja stafa raðnúmer í SIGMETi er með fyrsta staf sem auðkennir fyrirbærið (sjá töflu) og síðan tvo tölustafi samsvarandi fjölda útgefinna SIGMETa fyrir slíkt fyrirbæri síðan 00.01 UTC.
SIGMET gilda allt að fjórum klst. nema eldgosa-SIGMET sem hefur allt að sex klst. gildistíma.
SIGMET skal að öllu jöfnu endurnýjað með a.m.k. 30 mín fyrirvara, ef þörf er á.
Athugið að ef SIGMET er sent út í æfingaskyni er það merkt með “EXER” í upphafi skeytis.
Samkvæmt ósk frá notendum eru ekki gefin út SIGMET yfir hafi nema tilkynning hafi borist um slík fyrirbæri.
 
Name of MWO /
Location Indicator
Hours FIR or CTA
served
Type of
SIGMET
validity
Specific Procedures ATS
Unit
served
Additional Information
1 2 3 4 5 6 7
Reykjavik-BIRK H24 Reykjavik FIR/
CTA


Weather SIGMETs for
Reykjavik FIR/
CTA
 

Volcano
SIGMETs for
Reykjavik FIR/
CTA consisting
of preeruption
warnings, and
also warnings
during the
eruptions
NIL Reykjavik
ACC
RCC
TWR


Languages:
English and Icelandic
Charts Available:
S, U, P, W, T
 

MET information/ flight
folders are available from
flight dispatchers, for
example at Keflavik Airport.
 

If requested, flight folder
and weather briefing by a
meteorologist is available
by telephone at IMO
Reykjavik tel: +354 5226310
Note:
Charts Available:
S = surface analysis (current chart);
U = upper air analyses (3 = 300 h Pa);
P = prognostic upper air chart;
W = significant weather chart;
T = tropopause chart
 
SIGMET eru send út með ATIS fyrir flugvellina í Keflavík, Reykjavík og Akureyri eins og við á.
Flugstjórnarmiðstöðin í Reykjavík dreifir SIGMET, sem hafa áhrif á viðkomandi flug innan BIRD CTA, til flugmanns með CPDLC, í gegnum Iceland Radio eða á flugstjórnartíðnum.
 

GEN 3.5.9 Aðrar sjálfvirkar veðurþjónustur

Flugveðurupplýsingar er hægt að nálgast á vefsíðu Veðurstofunnar,  https://www.vedur.is/vedur/flugvedur og á Northavimet
https://www.northavimet.com
Sækja þarf um aðgang að Northavimet.