GEN 3.3 FLUGUMFERÐARÞJÓNUSTA

 

GEN 3.3.1 Ábyrgðaraðili þjónustunnar

Veitandi flugumferðarþjónustu í því svæði sem lýst er í GEN 3.3.2.1 er Isavia ANS.
  Isavia ANS ehf.
Nauthólsvegur 60-66
102 Reykjavík, Ísland
Sími: + 354 424 5000
Símbréf: N/A
Netfang: ans@isavia.is
Veffang: https://ans.isavia.is/
AFS: BIRDZQZX
Opnunartími: Virka daga 8-16 UTC
Veitandi flugumferðarþjónustu í því svæði sem lýst er í GEN 3.3.2.2 er Isavia Ohf.
 
  Isavia Ohf.
Dalshraun 3
220 Hafnarfjörður, Ísland
Sími: + 354 424 4000
Símbréf: N/A
Netfang: isavia@isavia.is
Veffang: https://www.isavia.is/
AFS: BIKFZTZX 
Opnunartími: Virka daga 8-16 UTC
Flugumferðarþjónustan er starfrækt samkvæmt reglugerðum 770/2010 og 787/2010 ásamt eftirfarandi handbókum ICAO:
  1. Viðauki 2 - Rules of the Air
  2. Viðauki 11 - Air Traffic Services
  3. Procedures for Air Navigation Services - Air Traffic Management (Doc - 4444 - ATM/501)
  4. DOC 8168 - Procedures for Air Navigation Services, Aircraft Operations (PANS - OPS)
  5. DOC 7030 - Regional Supplementary Procedures NAT Region,
    (ENR 1.8, aðeins á ensku) sýnir þær reglur sem gilda fyrir Reykjavik CTA)
Frávik frá viðaukum ICAO eru tilteknar í GEN 1.7

GEN 3.3.2 Ábyrgðarsvæði

Flugumferðarþjónusta er veitt samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum og samningum.
Þjónustusvæðinu og skiptingu þess er nánar lýst í ENR 2 og AD 2.17 fyrir hvern flugvöll.
  1. Isavia ANS ber ábyrgð á eftirfarandi þjónustu:  
    1. Flugstjórnarmiðstöðin  í Reykjavík veitir flugstjórnar-, flugupplýsinga og viðbúnaðarþjónustu innan Reykjavik FIR, íslenska innanlandssvæðisins, aðflugsstjórnarsvæðum Keflavíkur-, og Reykjavíkurflugvallar og Nuuk FIR, fyrir ofan FL 195 norðan við 63°30'N.
    2. Flugturninn á Reykjavíkurflugvelli veitir flugstjórnar-, flugupplýsinga og viðbúnaðarþjónustu innan flugstjórnarsviðs Reykjavíkurflugvallar.
    3. Flugturninn á Akureyrarflugvelli veitir flugstjórnar-, flugupplýsinga og viðbúnaðarþjónustu innan flugstjórnarsviðs og aðflugsstjórnarsvæði  Akureyrarflugvallar.
    4. Flugradíó á flugvelli sem auglýsir þjónustuna í AD 2.3 veitir flugupplýsinga og viðbúnaðarþjónustu á flugvellinum og næsta nágrenni hans eins og skilgreint er í AIP. 
  2. Flugturninn á Keflavíkurflugvelli veitir flugstjórnar-, flugupplýsinga og viðbúnaðarþjónustu innan flugstjórnarsviðs Keflavíkurflugvallar.

GEN 3.3.3 Tegundir þjónustu

Á Íslandi er veitt eftirtalin þjónusta: 
- Flugupplýsinga- og viðbúnaðarþjónusta er veitt af flugumferðarþjónustudeildum svo og flugupplýsingaþjónustu flugvalla (AFIS) á auglýstum þjónustutímum þeirra.
-    Svæðisflugstjórnarþjónusta og kögunarþjónusta er veitt af flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík.
-    Lýsing á kögunarþjónustu er að finna í ENR 1.6.
Flugumferðarstjórn er veitt:
  • innan flugstjórnarsvæðis Reykjavíkur,
  • innan FAXI TMA og Akureyri TMA,
  • innan flugstjórnarsviða Keflavíkur-, Reykjavíkur- og Akureyrarflugvallar
Flugupplýsingaþjónustu flugvalla er veitt á áætlanaflugvöllum innanlands á þeim tíma sem áætlanaflug er auglýst, sjá nánar í AD 2.3 fyrir hvern flugvöll.
 
Flugupplýsingaþjónustu flugvalla er einnig veitt á Reykjavíkurflugvelli utan þjónustutíma flugstjórnarþjónustu.
Athugið þó að takmarkanir gilda um flugtök og lendingar á Reykjavíkurflugvelli utan þjónustutíma flugstjórnarþjónustu, sjá BIRK AD 2.3.

GEN 3.3.3.1 Samskipti flugmanna og flugradíós

Flugmenn hafi samband við viðkomandi flugvöll á viðeigandi tíðni.
 
Flugradíómenn hafa skipunarvald gagnvart allri umferð á athafnasvæði flugvalla utan flugbrauta og akbrauta.
Umferð loftfara, ökutækja og manna á þessu svæði er því háð þeirra samþykki. Það felur m.a. í sér vald til að neita loftförum að aka inn á flugbrautir. Stjórnendur loftfara og ökutækja þurfa að afla akstursleyfis og fylgja viðeigandi leiðbeiningum frá flugradíómanni vegna aksturs utan flugbrauta og akbrauta. För fólks og ökutækja, þ.m.t. með loftför í togi, á umferðarsvæði flugvalla er háð leyfi flugradíómanns. Fólk, þ.m.t. ökumenn allra bifreiða, þarf leyfi frá flugradíómanni áður en farið er inn á umferðarsvæði flugvallar. Að auki þarf sérstakt leyfi frá flugradíómanni áður en farið er inná flugbraut eða öryggissvæði flugbrautar eða ef þörf er á að víkja frá áður fengnu leyfi. Ökutækjum ber ávallt að víkja fyrir loftförum hvort sem þau eru í flugtaki, lendingu, akstri eða drætti.
Opnunartími flugupplýsingaþjónustu flugvalla (AFIS) er í tengslum við áætlunarflug og er breytilegur, upplýsingar um þjónustutíma flugradíó er að finna í AD 2.3 fyrir þá flugvelli sem hafa AFIS. Allar breytingar á flugáætlun skal tilkynna í gegnum vefgátt eða  til næsta AFIS, TURN eða til Flugstjórnarmiðstöðvarinnar í Reykjavík á 119.700 MHz eða í síma 424 4240.

GEN 3.3.4 Samskipti milli flugrekenda og ATS

Samskipti milli flugumferðarþjónustu og flugrekenda fer fram samkvæmt ákvæðum ICAO PANS-ATM (Doc 4444).
Athugasemdir og fyrirspurnir varðandi vinnuaðferðir sendist á póstfangið procedures@isavia.is.
Athugasemdir og fyrirspurnir varðandi flugáætlanagerð sendist á póstfangið flightplanning@isavia.is.

GEN 3.3.5 Lágmarksflughæðir

Svæðislágmörk birt á Iceland Enroute Chart Area veita 2000 feta aðskilnað frá hæstu hindrun innan svæðis.
Svæðislágmörk birt á SID/STAR kortum veita 1500 feta aðskilnað frá hæstu hindrun innan svæðis á skilgreindum fjallendissvæðum og 1000 feta aðskilnað frá hæstu hindrun annarsstaðar.
Leiðarkerfi ATS er lýst í ENR 3. Það er frábrugðið venjulegum loftbrautakerfum sem algengust eru í öðrum löndum og nefnast „Airways“ á ensku, að því leyti að loftrýminu er stjórnað jafnt utan leiðanna sem innan þeirra. Lágmarkshæðir á ATS-leiðum, sem á ensku nefnast „ATS routes“ til aðgreiningar frá „airways“ kerfinu, eru miðaðar við a.m.k. 2 000 feta (600 m) hæð yfir hindrunum á jörðu innan marka leiðarinnar. Heildarbreidd RNAV-leiða eru 3,5 NM til hvorrar handar við miðlínu þeirra. Breidd ATS- leiðanna og verndað loftrými er a.m.k. 5 NM til hvorrar handar við miðlínu þeirra. Þar sem gleikkun á leiðarmerki viðkomandi flugleiðsögutækis og fjarlægð milli þeirra leiðir til þess að loftfar getur verið utan marka flugleiðarinnar, þá breikkar flugleiðin til hvorrar handar um 5° fyrir VOR og 10° fyrir NDB. Loftför skulu fljúga :
 
  1. eftir miðlínu auglýstrar ATS-leiðar, loftför skulu vera komin inná heimilaða flugleið innan 15 NM frá brottfararstað;
  2. beint milli staða ef ekki er um auglýstar leiðir að ræða.
Sjá meðfylgjandi skýringarmynd.
 
 
Dálkur 4, í ENR 3, lýsir hámarksbreidd tilgreinds hluta viðkomandi ATS-flugleiðar.

GEN 3.3.6 Heimilisföng flugumferðarþjónustudeilda

Nafn deildar
Unit Name
Póstfang 
Postal address
Símanúmer
Telephone No
FAX Netfang
E-mail
AFS Heimasíða
Website
Akureyri Turn/
TWR
Akureyrarflugvöllur
600 Akureyri
+354 424 4030 N/A biar@isavia.is N/A https://www.isavia.is/en/akureyri-airport
Bíldudalur Flugradíó/
AFIS
Bíldudalsflugvöllur
465 Bíldudalur
+354 424 4085 N/A atsairport@isavia.is N/A https://www.isavia.is/en/bildudalur-airport
Egilsstaðir Flugradíó/
AFIS
Egilsstaðaflugvöllur
700 Egilsstaðir
+354 424 4020 N/A bieg@isavia.is N/A https://www.isavia.is/en/egilsstadir-airport
Gjögur Flugradíó/
AFIS
Gjögurflugvöllur
524 Árneshreppur
+354 424 4086 N/A atsairport@isavia.is N/A https://www.isavia.is/en/gjogur-airport
Grímsey Flugradíó/
AFIS
Grímseyjarflugvöllur
611 Grímsey
+354  424 4070 N/A atsairport@isavia.is N/A https://www.isavia.is/en/grimsey-airport
Hornafjörður Flugradíó/
AFIS
Hornafjarðarflugvöllur
781 Höfn í Hornafirði
+354 424 4078 N/A atsairport@isavia.is N/A https://www.isavia.is/en/hornafjordur-airport


Húsavík Flugradíó/
AFIS
Húsavíkurflugvöllur
641 Húsavík
+354 424 4073 N/A atsairport@isavia.is N/A https://www.isavia.is/en/husavik-airport
Ísafjörður Flugradíó/
AFIS
Ísafjarðarflugvöllur
400 Ísafjörður
+354 424 4090 N/A atsairport@isavia.is N/A https://www.isavia.is/en/isafjordur-airport
Keflavík Turn/
TWR
Keflavíkurflugvöllur
235 Keflavíkurflugvelli
+354 424 4055 N/A atsairport@isavia.is BIKFZTZX https://www.isavia.is/en/keflavik-airport
Reykjavík Flugstjórn/
OACC
Flugstjórnarmiðstöð,
IS 102 Reykjavík
+354 424 4240 N/A acc@isavia.is BIRDZQZX https://www.isavia.is/fyrirtaekid/ flugleidsaga/flugstjornarmidstod
Reykjavík Turn/
TWR
Reykjavíkurflugvöllur,
IS 102 Reykjavík
+354 424 4040 N/A turn@isavia.is BIRDZQZR https://www.isavia.is/reykjavikurflugvollur
Sauðárkrókur
Flugradíó/AFIS
Sauðárkróksflugvöllur
550 Sauðárkrókur
+354 453 5175 N/A atsairport@isavia.is N/A https://www.isavia.is/fyrirtaekid/ vidskiptavinir/innanlandsflugvellir/flugvellir- og-lendingarstadir
Vestmannaeyjar
Flugradíó/AFIS
Vestmannaeyjaflugvöllur
IS 900 Vestmannaeyjar
+354 424 4099 N/A atsairport@isavia.is N/A https://www.isavia.is/en/vestmannaeyjar- airport
Vopnafjörður
Flugradíó/AFIS
Vopnafjarðarflugvöllur
690 Vopnafjörður
+354 424 4080 N/A atsairport@isavia.is N/A https://www.isavia.is/en/vopnafjordur-airport
Þórshöfn
Flugradíó/AFIS
Þórshafnarflugvöllur
680 Þórshöfn
+354 424 4071 N/A atsairport@isavia.is N/A https://www.isavia.is/en/thorshofn-airport