Keflavíkurflugvöllur er aðaltollhöfn. Á öðrum landamærastöðvum eru tollyfirvöld kölluð út.
|
||||||||||||||
Ekki má afhlaða loftfar, né hleypa farþegum og áhöfn frá borði áður en tolleftirlitsmenn koma. Við brottför loftfars til erlendra ríkja má ekki hlaða loftfar né hleypa farþegum og áhöfn um borð fyrr en leyfi tollyfirvalda liggur fyrir.
|
||||||||||||||
Allir farþegar og áhöfn - að frátöldum viðkomufarþegum - þurfa að gangast undir hefðbundið tolleftirlit við komu.
Farangur og aðrir hlutir sem farþegar og áhöfn flytja inn skulu sýndir sé þess krafist. Á þeim stöðum þar sem tollur hefur sett upp tvær stöðvar (rauða og græna) fyrir komu farþega, skulu farþegar sem hafa varning fram yfir þá upphæð sem leyfileg er til innflutnings tollfrjálsvarnings tilkynna við tolleftirlit við rauðu tollstöðina „tollskyldur varningur“. Aðrir farþegar skulu fara í tolleftirlit gegnum grænu stöðina merkta „Ekkert tollskylt“. Þeir farþegar sem velja grænu stöðina teljast hafa lýst því yfir við tolleftirlit að þeir hafi ekkert tollskylt meðferðis þegar þeir ganga yfir línuna merkta tolleftirlit. Heimilt er að viðhafa tolleftirlit við brottför. |
||||||||||||||
Allir farþegar skulu undirgangast vegabréfaeftirlit eftir að stigið er úr loftfari. Meginreglan er sú að ekki er vegabréfaeftirlit milli innri landamæra Schengen. Heimilt er að taka upp vegabréfaeftirlit við komu og brottför um takmarkaðan tíma vegna allsherjarreglu eða þjóðaröryggis.
|
||||||||||||||
Ákvæði 1.3.2.1 gildir einnig um áhafnarmeðlimi flugrekenda sem fljúga til og frá Íslandi.
|
||||||||||||||
Útlendingar sem koma til landsins skulu hafa vegabréf. Kennivottorð ýmissa ríkja eru viðurkennd við komu til Íslands.
|
||||||||||||||
Ríkisborgarar ríkja sem aðilar eru að Schengen eru ekki skyldugir til að hafa vegabréf við komu til Íslands beint frá öðru Schengen landi. Vegabréfs er krafist frá ríkisborgurum ríkja sem ekki eru aðilar að Schengen sem koma til Íslands beint frá sérhverju öðru landi. Vegabréfaeftirlit er viðhaft við brottför til landa utan Schengen.
|
||||||||||||||
Frekari upplýsingar um kröfur til vegabréfa, kennivottorða og vegabréfsáritana má fá hjá:
|
||||||||||||||
|
||||||||||||||
Útlendingar sem koma til landsins skulu hafa vegabréfsáritun. Undanþegnir eru:
|
||||||||||||||
|
||||||||||||||
Sérreglur gilda um útlendinga sem falla undir EES- samninginn.
|
||||||||||||||
Almenna reglan er sú að ekki er krafist bólusetningarvottorðs.
Undir venjulegum kringumstæðum eru ekki gerðar heilbrigðisskoðanir við brottför. |