ENR 1 ALMENNAR REGLUR OG STARFSHÆTTIR

ENR 1.1 ALMENNAR REGLUR

 
 

ENR 1.1.1 Almennt

Starfsreglur og starfshættir, sem notaðir eru við flugleiðsögu innan Reykjavík FIR/CTA, í samræmi við reglugerðir 770/2010, 787/2010, Annex 2 og 11 eins og þeir eru samþykktir af Alþjóðaflugmálastofnuninni hvað varðar flugreglur og flugleiðsöguþjónustu svo og viðaukastarfshætti sem gilda á Norður-Atlantshafi.
Sjá GEN 3.3 fyrir almennar upplýsingar um flugumferðarþjónustu (ATS).

Viðaukastarfshættir fyrir Reykjavik CTA sem gefnir eru út í ICAO Doc 7030, eru í ENR 1.8 .

ENR 1.1.2 Lágmarksflughæð

Almennt:

Að frátöldu flugtaki og lendingu eða með sérstöku leyfi Samgöngustofu skal loftförum flogið í nægilegri hæð yfir þéttbýlum hlutum borga, bæja eða þorpa, eða yfir útisamkomum, sem gerir mögulegt, í neyðartilvikum, að lending eigi sér stað án þess að mönnum eða eignum á jörðu niðri sé stofnað í ótilhlýðilega hættu.
Sjónflug:

Ekki má fljúga sjónflug, nema nauðsynlegt sé vegna flugtaks og lendingar, eða með sérstöku leyfi Samgöngustofu:
  1. yfir þéttbýlum hlutum borga, bæja eða þorpa eða yfir útisamkomum í minni hæð en 1.000 fetum yfir hæstu hindrun innan 600 m fjarlægðar frá loftfarinu;
  2. annars staðar en getið er í a) lið þessarar greinar í minni hæð en 500 fetum (150 m) yfir láði eða legi.
Blindflug:

Að því undanskildu, þegar nauðsynlegt er við flugtök og lendingar eða þegar sérstakt leyfi hefur fengist frá Samgöngustofu, skal fljúga blindflug í lagi sem er ekki lægra en sú lágmarksflughæð sem birt er á kortum í þessari handbók.

Samgöngustofa getur veitt undanþágu fyrir framkvæmd á flugi í sérstökum tilgangi.

ENR 1.1.3 Útkast hluta

Engu skal kastað fyrir borð loftfars á flugi né úðað frá því nema með leyfi Samgöngustofu og í samræmi við skilyrði þar um og viðeigandi upplýsingar, ráðgjöf eða heimild frá Isavia ANS.

ENR 1.1.4 Listflug

Listflug skal flogið í samræmi við reglugerð um flugsýningar og í samræmi við upplýsingar, ráðgjöf eða heimildir frá Isavia ANS.

ENR 1.1.5 Fallahlífastökk

Fallhlífastökk skal framkvæmt í samræmi við reglugerð um fallhlífarstökk og í samræmi við upplýsingar, ráðgjöf eða heimildir frá Isavia ANS.
 

ENR 1.1.6 Tog- og auglýsingaflug

Loftfar skal ekki draga annað loftfar eða hluti í flugtogi, innan stjórnaðs loftrýmis, nema með leyfi frá Isavia ANS.

Aðeins skal leyfið veitt ef:
  1. flugmaðurinn hefur réttindi til slíks flugs;
  2. loftfarið er útbúið leiðréttum þrýstirita til að skrá flughæðir á meðan á flugi stendur;
  3. að í fylkingarflugi séu ekki fleiri en þrjú loftför í áætluðu flugi en í slíkum tilfellum verði fjarlægð aldrei minni en 60 m frá hlutnum, sem dreginn er, og loftfars, sem dregur það, og annars sem er á eftir því svo og á milli loftfara;
  4. lagaleg skaðabótaskyldutrygging sé einnig augljóslega fyrir hendi vegna togs á hlutum.
Ofangreint á við um tog á hlutum til auglýsinga en undirgrein nr. 2. á ekki við verkflug þyrlna. Ekki þarf leyfi til togs á svifflugum þar sem að réttindi til togs nægja.

ENR 1.1.7 Tíma- og mælieiningar

Í flugi og flugstarfsemi á jörðu niðri er máltími (UTC) notaður og mælieiningar sem byggja á alþjóðlega SI- einingakerfinu.

ENR 1.1.8 Samsetning loftrýma

Samgöngustofa ákveður flokkun loftrýmis á grundvelli þeirrar flokkunar sem lýst er í ENR 1.4.

Flugumferðarþjónustan getur bannað VFR-flug algjörlega eða að hluta í stjórnuðu loftrými vegna takmarkana í rými og tíma ef nauðsyn krefur vegna mikillar umferðar sem krefst flugumferðarstjórnar.

ENR 1.1.9 Bannsvæði og flughindranir

Ef nauðsyn krefur ákveður Samgöngustofa bann- og haftasvæði til að draga úr hættu fyrir almenning og sérstaklega til öryggis fyrir flugumferð. Svæði þessi er að finna í AIP.

ENR 1.1.10 Loftbelgir, flugdrekar og fjarstýrð loftför (drónar eða flugmódel)

Ekki skal svífa mannlausum loftbelg án heimildar Samgöngustofu. Mannlausum frjálsum loftbelgjum skal stjórnað þannig að sem minnst hætta verði fyrir menn, eignir eða önnur loftför og samkvæmt skilyrðum sem tilgreind eru í viðbæti 4 við Rg. 770/2010 um flugreglur.
Reglur um flug fjarstýrðra loftfara (dróna eða flugmódela) er að finna í reglugerð um starfrækslu fjarstýrðra loftfara nr. 990/2017. Reglugerðin gerir greinarmun á því hvort um flug fjarstýrðra loftfara í atvinnuskyni eða tómstundaskyni er að ræða, en sérstök skilyrði gilda fyrir notkun fjarstýrðra loftfara sem flogið er í atvinnuskyni, sjá nánar í reglugerð.
Eftirfarandi eru almennar takmarkanir á flugi fjarstýrðra loftfara (dróna eða flugmódela) skv. reglugerðinni, en nánari ákvæði og kröfur um flug fjarstýrðra loftfara (dróna eða flugmódela) er að finna í reglugerðinni.
Óheimilt er að fljúga fjarstýrðu loftfari (dróna eða flugmódeli) yfir mannfjölda.
Innan þéttbýlis er eingöngu heimilt að fljúga í tómstundaskyni fjarstýrðu loftfari (dróna eða flugmódeli) sem vegur að hámarki 3 kg.
Ekki skal flogið nær íbúðarhúsnæði eða athafnasvæðum en 50 m nema með heimild frá eiganda, umráðanda eða húsfélagi.
 
Utan þéttbýlis er heimilt að fljúga fjarstýrðu loftfari (dróna eða flugmódeli) sem vegur að hámarki 25 kg. Ekki skal flogið nær frístundahúsum, íbúðarhúsnæði eða athafnasvæðum utan þéttbýlis en 150 m án heimildar eiganda eða umráðanda.
Fylgja skal fyrirmælum, takmörkunum og banni flugumferðarþjónustu, lögreglu, Landhelgisgæslunnar, Samgöngustofu sem og annarra yfirvalda um flug fjarstýrðra loftfara (dróni eða flugmódel) á tilteknum svæðum, þ.á.m. takmörkunum sem settar eru innan friðlýstra svæða á grundvelli laga um náttúruvernd eða á grundvelli sérlaga sem um viðkomandi svæði kunna að gilda.
Taka skal tillit til allrar flugumferðar sem og annarrar umferðar. Fylgjast skal með loftrými þar sem flug á sér stað svo að hægt sé að stöðva flug/víkja ef loftför með stjórnanda um borð nálgast rýmið. Jafnframt skal þess gætt að flug trufli ekki aðra umferð s.s. skipa eða ökutækja eða sé til þess fallið að skerða athygli stjórnenda eða annarra um borð. Fjarstýrð loftför (dróni eða flugmódel) skulu víkja fyrir annarri umferð og óheimilt er að nýta fjarstýrt loftfar til að hafa áhrif á aðra umferð.
Óheimilt er að fljúga fjarstýrðu loftfari (dróna eða flugmódeli) í meiri hæð en 120 m yfir láði og legi.

Óheimilt er að fljúga innan 150 metra fjarlægðar frá opinberum byggingum s.s. Alþingi, forsetabústað, ráðuneytum, lögreglustöðvum og fangelsum.

Leyfi rekstraraðila flugvallar þarf til þess að fljúga fjarstýrðu loftfari (dróna eða flugmódeli) innan flugvallarsvæða.
Leyfi Isavia þarf til þess að fljúga fjarstýrðu loftfari (dróna eða flugmódeli) innan:
  1. 2 km frá svæðamörkum Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvallar;
  2. 1,5 km frá svæðamörkum annarra áætlunarflugvalla.
að því undanskildu að flug er heimilt ef loftfarinu er flogið undir hæð hæstu mannvirkja í næsta nágrenni við flugferil loftfarsins.

Gátt fyrir umsóknir um leyfi er að finna á heimasíðu Isavia.
Í kringum flugbrautir annarra flugvalla og lendingarstaða skal sýna ýtrustu varkárni og gæta fyllsta öryggis. Fjarstýrð loftför (dróni eða flugmódel) skulu ávallt víkja fyrir annarri flugumferð. Upplýsingar um svæðamörk flugbrauta og áætlunarflugvelli er að finna á vef Samgöngustofu.
Flug fjarstýrðra loftfara (dróni eða flugmódeli) skal ávallt fara fram í augsýn fjarflugmanns eða umsjónarmanns fjarstýrðs loftfars. Þó er heimilt að fljúga fjarstýrðu loftfari (dróna eða flugmódeli) sem vegur minna en 3 kg úr augsýn fjarflugmanns sé um að ræða flug utan þéttbýlis og byggðra svæða, að því gefnu að aðskilnaður sé tryggður og að flug ógni ekki fólki, dýrum og loftförum með stjórnanda um borð eða sé til þess fallið að valda tjóni á eignum eða raska varpstöðvum eða búsvæðum villtra dýra.
Samgöngustofa sér um veitingu leyfa og undanþága fyrir fjarstýrð loftför (dróna eða flugmódel) sem ekki er flogið í tómstundaskyni í öðrum tilvikum en þegar um er að ræða flug í nágrenni flugvalla, í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 990/2017 um fjarstýrð loftför.
Gátt fyrir umsóknir um leyfi og undanþágu fyrir fjarstýrð loftför sem ekki er flogið í tómstundaskyni er að finna á heimasíðu Samgöngustofu.

ENR 1.1.11 Flug fisa

Fisi má einungis fljúga í samræmi við reglugerð 770/2010 um flugreglur og reglugerð 779/2007 um fis og eftirtalin skilyrði:
  1. sjást skal til jarðar;
  2. fljúga skal á tímabilinu frá sólaruppkomu til sólarlags (sólarmiðja 6 gráður fyrir neðan sjóndeildarhring);
  3. óheimilt er að fljúga fisum yfir þéttbýl svæði borga, bæja eða sumarhúsabyggð eða yfir svæði þar sem mikill mannfjöldi er saman kominn;
  4. óheimilt er að fljúga fisi þannig að mönnum og verðmætum geti stafað hætta af og jafnframt er óheimilt að varpa eða dreifa hlutum úr fisi ef það getur valdið hættu fyrir menn og verðmæti utan þess; og
  5. óheimilt er að fljúga fisum í flugstjórnarrými nema að fengnu leyfi hlutaðeigandi veitanda flug- umferðarþjónustu. Óheimilt er að fljúga fisum innan 5 mílna radíuss flugvalla með flug- umferðarþjónustu nema að höfðu samráði við flugumferðar-þjónustudeild, flugvallarvörð eða flugradíómann. Upplýsingar um skiptingu loftrýmis er að finna í ENR 2.1.
Athugið sérreglur fyrir flug fisa í nágrenni flugvalla er að finna í AD 2.20 fyrir viðkomandi flugvöll.

ENR 1.1.12 Flug yfir hljóðhraða

Flug yfir hljóðhraða er bannað innan Flugupplýsingasvæðis Reykjavíkur eftir því sem hér segir:
  1. Yfir landi og innan 12 sjómílna frá grunnlínum landhelginnar, undir fluglagi 300.
  2. Yfir hafi utan 12 sjómílna, undir fluglagi 150.

ENR 1.1.13 Fylkingarflug og hópflug

Flugstjórnarmiðstöðin í Reykjavík er samræmingar miðstöð fyrir þjónustu við fylkingarflug í blindflugi.

Rekstraraðilar sem óska þjónustu skulu leggja inn beiðni til flugstjórnarmiðstöðvarinnar í Reykjavík með netpósti, acc@isavia.is með 24 tíma fyrirvara.
Loftförum skal ekki flogið í fylkingu eða hóp, nema undirbúningur hafi átt sér stað meðal flugstjóra loftfaranna sem taka þátt í fluginu og, fyrir flug í flugstjórnarrými, að flogið sé í samræmi við eftirfarandi skilyrði:
  1. að fylkingin fljúgi sem eitt loftfar með tilliti til flugleiðsögu og stöðu tilkynninga;
  2. að aðskilnaður milli loftfaranna í fluginu skuli vera á ábyrgð fylkingarforingjans og flugstjóra hinna loftfaranna í fylkingarfluginu og skuli ná yfir þann aðlögunartíma þegar loftförin breyta af beinu og láréttu flugi til að ná aðskilnaði sín á milli í fylkingunni og þegar fylkingin sameinast og dreifist; og
  3. að hvert loftfar haldi fjarlægð frá fylkingarforingjanum, sem ekki er meiri en 0,5 NM lárétt og 100 fet lóðrétt frá honum.
Upplýsingar um fjölda véla og tegund skal vera skráð í flugáætlun í samræmi við  ENR 1.8.3.1.3.4 .